23.1.2010 | 21:31
Íslensk kvikmyndagerð á höggstokknum
Stundum gerast atburðir sem erfitt er að útskýra þótt þeir séu ekki flokkaðir sem yfirnáttúrulegir. Nú standa íslenskir kvikmyndagerðarmenn frammi fyrir atburðum sem illa gengur að útskýra með eðlilegri rökhugsun.
Það sem gerst hefur er að ráðamenn ríkisfjármála og yfirmenn Sjónvarpsins hafa ákveðið að leggja íslenska kvikmyndagerð í rúst!
Fjárfesting ríkisins í kvikmyndagerð hefur verið skorin niður um 35% á sama tíma og ýmsar aðrar greinar á menningarsviðinu sleppa með niðurskurð sem nemur 3- 10%. Og stjórnandi Sjónvarpsins lýsir því svo yfir að RÚV kaupi ekki íslenskar kvikmyndir og minnki stórlega kaup á heimildamyndum og sjónvarpsþáttum frá íslenskum framleiðendum. Eðlilegast hefði verið að hann hefði sagt af sér í kjölfar yfirlýsingarinnar, slíkar eru afleiðingar þessarar ákvörðunar.
Í hnotskurn er málið þannig að kaup RÚV á íslenskum kvikmyndum er forsenda þess að framleiðendur þeirra geta sótt fé til annarra aðila. Kvikmyndamiðstöð Íslands fjárfestir ekki í kvikmyndaverkefnum sem verða ekki sýnd opinberlega, það er bannað samkvæmt reglugerð og það sama gildir um alla sjóði og stofnanir sem fjárfesta í kvikmyndum í nálægum löndum. Með ákvörðun yfirmanna Sjónvarpsins er því verið að ákveða að íslenskir kvikmyndagerðarmenn hætti að framleiða heimildamyndir, leiknar sjónvarpsseríur og stuttmyndir. Framleiðendur bíómynda hafa tekjur af sýningum í kvikmyndahúsum en fjármagna verkin einnig að hluta með sölu til RÚV. Og þar sem það hefur sýnt sig að auglýsingasala Sjónvarpsins gengur betur þegar íslenskt gæðaefni er á skjánum þá mun draga úr framleiðslu sjónvarpsauglýsinga. Og þar með dragast enn frekar saman möguleikar kvikmyndagerðarmanna til þess að vinna fyrir salti í grautinn.
Baksvið þess að Sjónvarpið hyggst fara þessa leið er að ríkisvaldið hefur lagt á nefskatt sem kemur í stað áskriftagjalda Ríkisútvarpsins. Hluti þessa skatts hefur nú verið tekinn og ráðstafað í önnur verkefni. Það má því segja að þingmenn og ráðherrar sem standa að niðurskurði framlaga til Kvikmyndamiðstöðvar bæti gráu ofan á svart með því að skerða möguleika RÚV til þess að kaupa og sýna íslensk kvikmyndaverk. En það hlýtur einnig að vekja eftirtekt og umhugsun að forráðamenn Sjónvarpsins skuli reiða til höggs gegn innlendu menningarefni og listum.
Kvikmyndagerðarmenn vissu að niðurskurður yrði óhjákvæmilegur. En þeir töldu í einfeldni sinni að sanngirni og jafnræði réði för hjá ríkisvaldinu. En niðurstaða fjárlaga og ákvörðun yfirmanna RÚV sýnir að þau sjónarmið hafa ekki verið ráðandi í þeirri aðför að kvikmyndagerð sem er nú staðreynd.
Það mun líða nokkur tími áður en Íslenskir áhorfendur munu sjá afleiðingar þess að kvikmyndagerð á Íslandi er leidd á höggstokkinn árið 2010. Ferlið verður með þeim hætti að þær myndir sem eru í framleiðslu klárast en nánast ómögulegt verður að hefjast handa við ný kvikmyndaverk. Kvikmyndasjóður hefur, eftir niðurskurðinn, 450 milljónir til úthlutunar. En eftir að RÚV hættir að kaupa verk þá getur nánast enginn kvikmyndaframleiðandi fjármagnað verk án uppáskriftar frá RÚV og því munu peningar kvikmyndasjóðs ekki nýtast til framleiðslu kvikmyndaverka.
Eftir 2 -3 ár verður framboð á íslenskum kvikmyndaverkum fátæklegt. Leiknar þáttaraðir munu eingöngu vera framleiddar og sýndar vegna öflugrar starfsemi Stöðvar 2. Stöð 2 og Skjár 1 kaupa ekki íslenskar heimildamyndir frekar en RÚV skv. ákvörðun sjónvarpsstjórans. Það getur aðeins þýtt að íslendingar sjá ekki íslenskar heimildamyndir því þær verða ekki framleiddar. Bíómyndir verða færri og flest fólk á landsbyggðinni mun ekki sjá þær.
Fyrir hverja krónu sem ríkið hefur fjárfest í kvikmyndagerð hafa 3 - 4 krónur ratað í ríkiskassann og kvikmyndagerð dregur að töluverðan erlendan gjaldeyri. Vegna aðgerðanna gegn kvikmyndaiðnaðinum mun fjöldi kvikmyndagerðarfólks bætast á atvinnuleysisskrá, ríkið verður af skatttekjum og þarf einnig að greiða atvinnuleysisbætur. Þessa hlið málsins ætla ég ekki að ræða hér og ekki heldur menningarlegt gildi góðra kvikmynda. Það hefur sýnt sig að ráðamenn skilja ekki þau rök sem við höfum lagt fram á fjölmörgum fundum með ráðherrum og nefndum Alþingis að undanförnu.
Þjóðir sem verða fyrir áföllum verða að grípa til allra tiltækra ráða til að endurreisa samfélagið. Gildir það jafnt um áföll af völdum náttúrunnar eða aðgerða mannanna líkt og Hrunið sem Íslendingar þekkja nú af eigin raun.
Endurreisn íslenska samfélagsins er og verður erfið og ekki án átaka. Það mun svíða undan ýmsum aðgerðum sem verður að ráðast í og það munu heyrast raddir sem andmæla mörgu sem er byrjað á og ýmsu sem er framundan.
En þegar ráðamenn grípa til slíkra heimskuráða og hér sýna sig þá dregur úr trú almennings á framsýni þeirra og þekkingu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.1.2010 kl. 09:49 | Facebook
Athugasemdir
Ríkisstjórn sem setur völd sín númer eitt. ESB númer tvö og er tilbúin að setja óþarfa birgðar á þjóðina í formi Icesavesamninga vegna óhæfra samningamanna, hún mun rústa atvinnuvegunum, menningu og listum. Þetta styður þú af heilum hug og reynir að ljúga einhverjum rökum að sjálfum þér sem þú að sjálfsögðu trúir, en engir aðrir. Allt þetta færðu fyrir stuðningninn, verði þér að góðu.
Sigurður Þorsteinsson, 23.1.2010 kl. 21:56
Enn ein svarta fjöðrin í hatt ríkisstjórnarinnar.
Ég verð fegnari á hverjum degi að hafa ekki kosið fjórflokkinn.
Billi bilaði, 24.1.2010 kl. 07:48
Þetta er nú ríkisstjórnin þín Hjálmtýr sem þú hefur varið með kjafti og klóm. Við gagnrýnendur hennar höfum verið að reyna að benda þér á að forgangsröðun og áherslur stjórnarinnar eru kolrangar. Þetta er enn eitt dæmið um það. Velkominn í lið gagnrýnenda.
Jón Baldur Lorange, 24.1.2010 kl. 12:31
Samkvæmt lögum sem gilda um menningarhlutverk RUV á fyrirtækið að sýna íslenskar heimildarkvikmyndir og byrjaði strax á því að gera það við miklu þrengri fjárráð og aðstæður en nú eru.
Sumar af þeim myndum lögðu mikið til þjóðfélagsumræðunnar eins og "Fiskur undir steini" og "Blóðrautt sólarlag".
Með þrautseigju og fórnfýsi hafa íslenskir kvikmyndargerðarmenn búið til rekstrarumhverfi nokkurs konar kóngulóarvefs þáttöku erlendra sjóða og fjárfesta í íslenskri kvikmyndagerð sem hafa fært bði atvinnu og tekjur inn í landið, auk þeirrar eflingar menningar sem í þessu hefur falist.
Þessi kóngulóarvefur hefur allan tímann hangið í "þræðinum að ofan", framlagi frá hinu opinbera á Íslandi sem hefur verið forsendan.
Ef klippt er á þennan þráð hrynur þetta allt og tjónið verður margfalt meira en meintur sparnaður, bæði í atvinnulegu-, peningalegu og menningarlegu tilliti.
Ómar Ragnarsson, 24.1.2010 kl. 14:10
Gott innlegg frá þér Ómar.
Sigurður Þ, Billi bilaði og Jón Baldur eru dálítið fastir í hjólförunum. Það er sama hvað ríkisstjórnin gerir - gott eða vont - það heyrast í þeim bölbænirnar upp úr skotgröfunum.
Hjálmtýr V Heiðdal, 24.1.2010 kl. 14:38
Það er nú ekki dýrt að sýna ódýrar íslenskar heimildarmyndir og kannski verður bara mikill aukning hjá Rúv í þeirri deild á komandi árum. Ef RÚV þarf að skera niður er það örugglega bara á kostnað dýrra og vondra heimildarmynda sem er alveg sjálfsagt að gera eins og ástandið er í dag. Þessi ákvörðun RÚV og ráðamanna er því fullkomlega réttlætanleg útfrá öllum sjónarhornum og ég mæli með en frekari niðurskurði til að bæta innlenda dagskrágerð á kostnað vondra heimildarmynda.
Björn Heiðdal, 24.1.2010 kl. 16:17
Nú erum við loksins sammála um eitthvað. Ég tek staðfastlega undir líkingu Ómars við þráðinn, sem allt hangir á. Ég er ekki viss um að þetta fólk átti sig á hvað það er að gera. Þarna er verið að gera út af við heila starfsgrein með óteljandi margfeldisáhrifum og það sennilega af tómri fávísi og heimsku, voga ég mér að segja. Það eru svo áhöld um hvort þetta er löglegt yfirleitt miðað við manifesto rUV. Þetta verður að stoppa. Nú er ráð að sjáhvort FK t.d. er til einhvers brúklegt. Ef við tökum tillit til vísitölunnar, þá er þessi skerðing miklu meiri. Þetta er gjöreyðing.
Jón Steinar Ragnarsson, 24.1.2010 kl. 16:32
Sæll Jón
Í fyrra var kvikmyndasjóður skorinn niður um 4,5%. Þetta fer að líkjast einelti.
Hjálmtýr V Heiðdal, 24.1.2010 kl. 17:16
Björn frændi
....
Hjálmtýr V Heiðdal, 24.1.2010 kl. 17:17
Týri, stjórnvöld þurfa að hafa stefnu og síðan getu til þess að framkvæma í ljósi hennar. Það má öllum vera ljóst að stefnan er afar óljós og ómarkviss og framkvæmdin eftir því. Á tungumáli kvikmyndagerðarmanna er þetta sjálfsagt sambærilegt að handritið sé afspyrnulélegt og fagmennirnir ekki til staðar.
Það eina sem kraftur er í eru spunameistararnir og flokkhænsnin sem garga með. Þú getur bara verið viss um eitt og það er að ástandið á bara eftir að versna. Þegar hanarnir fara upp á fjóshauginn til þess að garga, geta þeir ekki kvartað yfir því að verði fyrir skoti.
Sigurður Þorsteinsson, 24.1.2010 kl. 22:26
Sigfurður
Það er ekki annað hægt en að lofa þínar skilgreiningar - skerpan skín í gegn.
Hjálmtýr V Heiðdal, 24.1.2010 kl. 22:53
Hænsfungarnir hafa löngum dáðs að örnunum!
Sigurður Þorsteinsson, 24.1.2010 kl. 23:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.