100% lausn

Það er greinilega orðið nokkuð flókið flóttamannavandamálið í Frjálslynda flokknum. Jón Magnússon þingmaður skrifar á bloggsíðunni sinni að þessi væntanlegi hópur sé bara 1,5% þeirra sem hýrast í Al-Waleed búðunum og hjálpin því eingöngu táknræn. Hér er nýtt sjónarhorn í málinu. Ef þetta væru 20,000 manna búðir þá væri prósenta Jóns orðin svo lítil að það tæki því ekki að ræða málið eins og hann leggur það upp. En 30 manns eru 30 sálir með tilfinningar eins og þú og ég.
Mér sýnist eins og að það sé orðið höfuðatriðið að Frjálslyndi flokkurinn nái að hanga saman eftir klofninginn á Skaganum. Það er augljóst að Magnús óð af stað af lítilli skynsemi. Hann setti sig á móti komu flóttamannanna til Akraness með það að yfirvarpi að bærinn væri ekki nægilega vel í stakk búinn og að undirbúningurinn væri allur í skötulíki. Við vitum það flest að það verður aldrei hægt að leysa vandamál heimsins eða Akurnesinga endanlega og undirbúning má bæta. Það er hjartagæskan sem skiptir máli. Magnús hefði betur tekið undir boðið til flóttamannanna og farið í málið af jákvæðni og einurð. Og gagnrýna það sem var illa gert eftir efnum og ástæðum. En eitthvað í hans afstöðu, ekki rasismi að mínu mati, gerir það að verkum að hann – og nú allur þingflokkurinn - nema Sleggjan, eru eins og nátttröll í þessu máli.
Flóttafólkið er heimilslaust – svipt öllu fyrir tilstuðlan m.a. okkar þegar Ísland studdi stofnun Ísraelsríkis 1947. Réttast væri því að bjóða hingað öllum flóttamönnunum úr þessum búðum. Þeir eru ekki nema 1,500 - 2,000 og sjálfsagt einhverjir þeirra sem vilja ekki fara hingað.
Þessi skoðun mín mun að sjálfsögðu falla í misgrýttan jarðveg en með því að dreifa fólkinu um landið þá er þetta lítið mál. Jón, vinur minn og samstarfsmaður úr Áburðarverksmiðjunni, Magnússon verður kátur yfir þessu þar sem hann var að vandræðast með prósenturnar. Hér er dæmið leyst 100%.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta minnir mann helst á bullið í Ágústi Einarssyni veruleikafyrrta prófessornum úr Bifröst.

Ef þetta yrði gert myndu álögurnar á félagslega kerfið snaraukast og er þér alveg sama um harðduglegt fólk sem getur tæpast eignast börn á þessu landi lengur vegna slaks kaupmáttar launa hins venjulega vinnandi manns?

Svo vil ég spyrja þig hvað skuldum við múslimum? Hefurðu einhverja hugmynd um hvernig innflytjendamálin eru á öðrum norðurlöndum, í bretlandi, þýskalandi og víðsvegar?

Það er ekki vandamál hvítra manna að múslimar geti ekki byggt sér upp boðleg samfélög fyrir sitt eigið fólk. 

Johnny Rebel (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 22:29

2 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

rebellinn mættur- blessaður.

Ég veit ekki hvað Ágúst hefur sagt - upplýstu.

Hjálmtýr V Heiðdal, 28.5.2008 kl. 23:21

3 identicon

Það vantar alltaf uppreisn

Ágúst Einarsson gaf út greinargerð um að hann vildi sjá skapast hér á landi samfélag 3-5 milljóna manna og hann vildi fjölga upp í 3 milljónir á mettíma með ofur innflutningi á útlendingum. Þessa kenningu setti hann fram í kennsluhefti. Ég las þetta á sínum tíma og fannst rökstuðningurinn afleitur. Ætti vegakerfið á landinu t.d. að vera 10-20 akgreinar, ætti að 10 falda heilbrigðiskerfið og fjölga öllu 10 falt? Það er staðreynd á Íslandi að yfir helmingur fólks býr á höfuðborgarsvæðinu og fólk mun alltaf sækja þangað. Ég efast um að margir myndu vilja búa á Hrísey.

Ég vil nú reyndar biðjast afsökunnar á því að hafa líkt þér við þann mann. Ég hljóp svoldið á mig þar og er alveg maður til að viðurkenna mistök mín. 

Johnny Rebel (IP-tala skráð) 28.5.2008 kl. 23:37

4 Smámynd: Unnar Geirdal

Hvað skuldum við múslimum?

Skuldin er öll fremur en engin.

Trúin á ekki að koma málinu við.

Hvítir menn komu vandræðunum einfaldlega til múslima.

Og hvað er að því að fjölga upp í nokkrar milljónir og byggja einfaldlega þétt meðfram ströndinni.

Allir svo neikvæðir gangvart útlendingum. 

Ef 20 manns eða 2000 manns vilja koma hingað úr flóttamannabúðum þá á ekki einu sinni að eiga sér umræða um það nema á nótunum "Hvað get ég persónulega gert til að hjálpa þeim...?"

Unnar Geirdal, 29.5.2008 kl. 02:20

5 Smámynd: Heimir Eyvindarson

Heyr heyr

Heimir Eyvindarson, 29.5.2008 kl. 07:40

6 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Þeir sem skrifa nafnlaust eru yfirleitt með ýktari áherslur og meira bull en þeir sem koma fram undir réttu nafni. Ég tel að nafnleysingjar séu ekki eins marktækir flytjendur og þeir sem koma hreint fram með nafni og jafnvel mynd. Ég samþykkti tvo bloggvini í gær sem eru með dulnefni - kanski mun ég endurskoða það. Kynni mér nálgun þeirra á málefnin fyrst. Varðandi fjölda flóttamanna þá er allt best í hófi og fjöldinn má aldrei verða meiri en við ráðum við. Það er bæði okkur og þeim fyrir bestu. Ég vil halda íslenskri menningu til haga fyrir ókomnar kynslóðir. En ég vil ekki skilja eftir þann blett á minningu okkar núlifandi að við hefðum ekki sinnt kalli bágstaddra eftir getu.

Hjálmtýr V Heiðdal, 29.5.2008 kl. 08:37

7 identicon

Málflutningur Magnúsar í málefnum flóttamannanna er honum ekki til framdráttar. Ég er Skagamaður og þessi mál hafa verið mikið rædd og hingað til hef ég ekki hitt einn einasta aðila sem er mótfallinn komu þessara nýju Skagamanna. Okkur hefur þótt mjög leiðinlegt að landsmenn hafi fengið þessa ímynd af bænum okkur og það eingöngu fyrir gönuhlaupið í Magnúsi.  Jón Magnússon bætti ekki um betur eins og þú Hjálmtýr bendir á og hann hefur ekki einu sinni haft fyrir því að kynna sér málið, en ég benti honum á það inni á hans bloggi.

Hverjum og einum sem bjargað verður úr þessum ómannúðulegu aðstæðum er frábært. Menning hvers og eins getur aldrei að mínu mati gert neitt nema bæta. Að læra um menningu annarra kemur í veg fyrir fordóma

Kveðja

Sigrún Ríkharðsdóttir (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 09:07

8 identicon

Ég mótmæli harðlega því sem nafni minn Rebel segir. Inn með flóttamenninna palestínsku. Þeir eru aðeins 5 milljónir. Á Skagann með þá!

Johnny Schnitzel (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 11:52

9 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Ég lendi alltaf í vandræðum með að skilgreina hvað tilheyri "íslenskri menningu" ekki er það síbyljutónlistin sem við hlustum á..ekki sjónvarpsefnið(amerísku þættirnir)..ekki fötin okkar..framleidd í fátækari ríkjum heims..maturinn..pizzurnar..bílarnir arkitektúrinn..það er meira og minna allt sem er hér á landi annars staðar frá..sem betur fer, við værum enn í torfbæjum ef farið hefði verið að ráðum þeirra sem vildu forða landanum frá því að verða fyrir áhrifum frá heiminum...ég er viss um það að koma flóttafólksins muni ekki bara vera til góðs fyrir það heldur líka okkur...þó það yrði ekki til annars en að auka víðsýni íslendinga enn frekar og skilning á því að jörðin er eins og eitt land og allar manneskjur eins í grunninn....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 29.5.2008 kl. 12:13

10 Smámynd: Guðbjörn Jónsson

Ég hef það á tilfinningunni að fólk sé að misskilja Magnús. Ég les út úr viðbrögðum hans umhyggju fyrir fólkinu; að vilja sjá fyrir sér hvernig því geti reitt af í þessu ókunna samfélagi sem það er að koma til. Ég skil þá hugsun vel, enda um tíma tekið þátt í að hjálpa nauðstöddum um nokkra ára skeið.

Þú segir réttilega Hjálmtýr að það sé hjartagæskan sem sem skipti mestu máli. Þar er ég þér sammála. Ég hef ekki gagnrýnt þetta verkefni á þeim forsendum að hingað komi tiltölulega fáir einstaklingar, úr hópi nauðstaddr. Ég hef gagnrýnt hve litla hjálp er verið að veita fyrir alla þá fjármuni sem þarna er fyrirsjáanlega verið að leggja út.

Þú segir að fjöldinn í þessum búðum sem fólkið kemur úr, sé u. þ. b. 2000. Verkefnið er sagt kosta 200-300 milljónir, fyrir utan ótilgreinddan kostnað sveitarfélagsins.  Nú vill svo til að ABC barnahjálpin er að hefja uppbyggingu uppeldis og mentunarsetur í Kenya, þar sem aðsæður verði byggðar upp fyrir 2.200 vist- og starfsmenn. Þessi uppbygging kostar mun minna fé en verið er að leggja út til hjálpar þessum fáu, úr þeim 2000 manna hópi sem þú segir að séu í búðunum.  Með hugsunarhætti ABC og þeim mótelisma sem þar er notaður, hefði líklega verið hægt að búa öllu fólkinu í þessum búðum uppbyggilegt umhverfi, fyrir þá fjármuni sem fyrirhugað er að nota til að flytja fáeina búðabúa til annars menningar- og trúarheims. Ég læt fólki eftir að meta hvort sé skynsamlegara, auðveldara og varanlegra.

ABC er ekki búið að vera lengi í Kenya en er þegar komið með barnaheimili fyrir 210 börn, auk þess að styðja við menntun og lífsgæði hjá álíka hópi í 800 þúsund manna fátækrahverfi, þar sem líffskilyrði eru margfallt verri en í flóttamannabúðum. Þar rekur ABC einn barnaskóla og er nú á næstunni að fá afhennt stórt tveggja hæða hús þar sem starfræktur verður annar skóli, því hinn er þegar of lítill. Allt þetta starf kostar einungis brot af því fjármagni sem fyrirhugað er að setja í hina fyrirhuguðu flutninga fáeinna einstaklinga hingað.

Ég hef sagt, og segi enn, að merkja megi skynsemi manna á því hve hagsýnir þeir eru í að hámarka gagnsemi peninganna.  Ég er ekki í vafa um að þessu fólki hefði liðið betur í sínu heimalandi, ef þeim hefði verið búnar þar aðstæður, t. d. að þessar konur hefðu verið ráðnar til starfa við uppeldis og mentastofnun, sem alið hefði upp þann fjölda forsjárlausra barna sem á þessu svæði hljóta að vera.

Svoleiðis uppeldis- og menntasamfélag ABC á Indlandi (Litlu ljósin, samfélag meira en 2000 barna) er þegar farin að útskrifa háskólamenntað fólk. Allir eru studdir til mennta og sjálfstæðis.

Það þarf ekki alltaf að vera vitlaust sem hugsað er öðruvísi en pólitíkskir ráðamen hugsa.  

Guðbjörn Jónsson, 29.5.2008 kl. 12:31

11 Smámynd: Theódór Norðkvist

Guðbjörn:

Formúlan: 

Pólitíkusar að kaupa sér vinsældir

+ aðgangur að skattfé landsmanna

= klúður.

Þetta vitum við báðir.

Ég tek undir með þér hvað ABC varðar. Ég hef einmitt nefnt ABC sem fyrirmynd í flóttamanna- og neyðarhjálp. Að vísu sérhæfa þeir sig í börnum, en þeir eru í samstarfi við fólk og stofnanir sem eru traustsins verðar.

Ólíkt spilltum stjórnmálamönnum okkar.

Theódór Norðkvist, 29.5.2008 kl. 13:26

12 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það er engu líkara en að fólk (Íslendingar) viti ekki hvað um er að ræða..flóttafólkið hefst við í eyðimörk nálægt landamærum Íraks og Sýrlands, þar er akkúrat ekkert. Tjöldum hefur verið hróflað upp og þar með er það upp talið...hitinn fer yfir 50 stig, og sandbyljir eru vel þekktir þarna. Fólk fær innan við líter af vatni af dag sem takið eftir, þarf að flytja með miklum erfiðis munum. 4 klt eru í næstu heilsugæslu er leiðin þangað mjög hættuleg. Þetta flótta fólk flúði sínar heimaslóðir vegna morða á ættingjum...svo er fólk að tala um að hjálpa þeim á staðnum.....HALLÓ!! þetta er ekki byggilegt svæði...hvenær munu Íslendingar átta sig á því????

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 29.5.2008 kl. 16:02

13 identicon

Komu hvítir menn vandræðunum til múslima? Hverslags endemis rugl. Ekki stjórna hvítir menn Palestínu eða neinu öðru múslimaríki. Ég veit ekki betur en að um 8-10% íbúa Evrópu (A-Evrópa undanskilin) séu múslimar og við hjálpum þeim reglulega með peninga aðstoðum í Evrópu sem og í þeirra löndum. Þegar þeir eru til vandræða í samfélögum okkar þá lítum við undan og kennum okkur sjálfum um.

Mikið getur Hrafnhildur talað um ömurleika Íslenskrar menningu og hefur enga tilfinningu fyrir hvað það þýðir að vera Íslendingur en samt erum við nógu góð til að taka við flóttamönnunum, fæða þá og klæða. Samt erum við öll jöfn engu að síður þrátt fyrir að gæðum manna sé misskipt eftir heimsálfum, kynþáttum, þjóðerni og trúarbrögðum. Íslendingar þurfa ekki að átta sig á neinu varðandi þetta mál því þetta er ekki okkar vandamál og á engan hátt okkur að kenna. 

Að skrifa undir nafni er leið til þess að ná sér í persónulegan frama á netinu. Ég vil beina athyglinni að því sem ég er að segja.

Ertu annars kominn með þráhyggju gagnvart mér núna Árni? Var það ekki Viðar síðast? 

Johnny Rebel (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 17:58

14 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Johnny....ég tala hvergi um ömurleika íslenskrar menningar...áttu erfitt með lesskilning???Ég bendi á þá staðreynd að við erum ekkert meira spes en aðrir, okkar menning í dag samanstendur af áhrifum frá öðrum þjóðum, og ég geri mér fulla grein fyrir því hver saga þjóðarinnar er ...en óskaplega er sá maður fátækur að sjá ofsjónum yfir hjálp, til handa öðrum....

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 29.5.2008 kl. 19:49

15 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Þær stóðu sig ekki í lífinu???? Johnny þessar einstæðu mæður flúðu frá Írak því eiginmennirnir voru drepnir...árið 2006!!! hvernig færðu út að þær hafi verið í búðunum í 4 kynslóðir 2008-2006 gerir 2 ár hjá mér...

ég hef heldur hvergi sagt að hver einasti hvíti maður hafi fæðst með silfurskeið í munninum og að okkar eina skylda sé að bjarga lituðum kynstofni....ertu viss um að þú hafir lesskilning????

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 30.5.2008 kl. 00:25

16 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Johnny...hver var vondur við þig??? hvað í veröldinni gerir mann svona kaldlyndan og gjörsneyddan samúð með öðrum fólki??? Er þetta kannski meðfætt hjá þér???

Það sem gerir það að skyldu manns að hjálpa þeim sem minna mega sín og að finna til samúðar er það sem aðskilur okkur menn frá dýrum, það er sá eiginleiki sem mótar sjálfsmynd manns og sjálfsvirðingu....flestir eru fæddir með þennan eiginleika en hjá sumum verður hann að engu við vonda meðferð... 

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 30.5.2008 kl. 11:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband