21.7.2008 | 23:10
Svart ástand í Palestínu
Það var fróðleg frétt um málefni Ísraelsríkis í Sjónvarpinu í gær. Þar kom fram að hópur fólks frá S - Afríku heimsótti Palestínu og kynnti sér aðstæður á herteknu svæðunum. Hópurinn samanstóð af lögfræðingum, dómurum ofl. fólki sem allt þekkti vel til þeirrar kynþáttakúgunar sem ríkti í heimalandi þeirra áður fyrr. Meðal ferðalanganna voru nokkrir gyðingar og voru birt viðtöl við þá í frétt RÚV. Þeir sögðust hafa uppgötvað að ástandið í Palestínu væri svipað og það var áður í S - Afríku þegar kynþáttastefnan réði þar ríkjum. Í S-Afríku var svörtum mönnum skipað að búa innilokaðir í s.k. Bantústan-svæðum við mikla eymd og fátækt. Þessa frétt bar uppá 90 ára afmæli Nelson Mandela en hann hefur fordæmt kynþáttastefnu Ísraelstjórnar.
Einhver skrifaði ekki fyrir alls löngu að ef Palestínuarabar væru blökkumenn þá væri heimurinn búinn að stöðva framferði Ísraela. En tök Síonista í bandarískum stjórnmálum virðast gera þeim kleift að halda áfram hinn gengdarlausu kúgun í Palestínu. Og ef marka má yfirlýsingar Óbama, fyrsta blökkumannsins sem á möguleika á að ná kjöri sem forseti BNA, virðist lítil von til þess að hann breyti stefnunni gagnvart Ísrael.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Styrkur og ítök Gyðinga í USA er of mikill til að nokkur forseti hætti á að þvinga fram breytingar á stefnu Ísraels. Það verður að koma annarstaðar frá.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.7.2008 kl. 01:19
"Ísael er ekki 51. ríki BNA, frekar má líta á bandaríska þingið sem eitt af herteknum svæðum Ísraels." Þetta lét þingmaður á Ísraelska þinginu flakka og lýsir stöðunni vel! Lobbíistar síonismans ráða miklu um hver verður forseti BNA. Hver sé sem setur sig upp á móti þessum lobbíistum, og þrýstihópum gyðinga, á enga von um frama í stjórnmálum í BNA. Eina vonin um breytingar, og þrýsting um breytta stefnu í Íslael, er ESB.
Auðun Gíslason, 25.7.2008 kl. 12:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.