22.7.2008 | 08:16
ESB – fyrst inn og svo út
Ég er maður hinna einföldu lausna. ESB málið er ekki flókið fyrir Íslendinga þótt svo virðist af allri umræðunni með og á móti aðild. Lausnin er auðvitað þessi: fyrst göngum við í ESB og njótum þess efnahagslega ábata sem það mun færa okkur. Síðan, þegar þeir sem benda á ókostina, s.s. framsal fullveldis, hafa sannað sitt mál, þá kýs þjóðin einfaldlega að hverfa til gamla tímans og gengur úr ESB. Við tökum aftur upp hærri vexti og snarhækkað vöruverð og endurreisum jafnvel krónuna til að fullkomna verkið. Fullveldinu bjargað, efnahagslegur gróði kominn í hús og við leysum landfestar og siglum aftur á okkar stað fjarri Evrópu.
Geir Harde er nýbúinn að ráð sér ráðgjafa sem efalaust kostar sitt. Til að efla þjóðarhag þá býð ég hér með Geir að hringja í mig endurgjaldslaust hvenær sem er milli 9 – 17.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ég skil skensið.
Ég held að við ættum hreinlega að drífa okkur í aðildarviðræður líkt og 60% þjóðarinnar vill. Er þær skila og slæmri niðurstöðu, þurfum við ekkert að spá meira í þennan möguleika, annars förum við inn.
Það fyndnasta er að ef Geir og nýi ráðgjafinn skoða niðurstöðu skoðunarkönnunar SI, þá eru 57% sjálfstæðismanna hlynntir aðildarviðræðum (ég er einn af þeim) og 43% á móti.
Það er næstum sama niðurstaða og ef þjóðin öll er tekin.
Guðbjörn Guðbjörnsson, 22.7.2008 kl. 10:12
Geir er ekki búinn að hringja - ég bara bíð.
Hjálmtýr V Heiðdal, 22.7.2008 kl. 13:15
Atvinnuleysi er gott. Við þurfum endilega á því að halda. Það gengur ekki að vanþakklátur verkalýður valsi inn og út um hurðina hjá atvinnurekendum og stilli þeim upp við vegg. Sem atvinnurekandi tel ég gott að fá töluvert atvinnuleysi til að halda verkalýðnum á mottunni. 20-30% atvinnuleysi og upptaka evrunnar er eitthvað sem Íslendingar eiga að stefna að.
Svo er ESB líka gott fyrir gróðurinn og kynlíf eldriborgara. En samkvæmt stefnu ESB eiga eldriborgarar í aðildarlöndum sambandsins rétt á skemmtilegu kynlífi fram á grafarbakkann. ESB er líka á móti hvalveiðum og óhamingjusömum svínum.
Björn Heiðdal, 22.7.2008 kl. 22:05
Svíþjóð borgar nú rúmlega 30 milljarða sænskra króna á ári í skatt til Brussel, þar sem 35.000 vel launaðir ESB-starfsmenn sjá um að koma þessu í lóg. Þetta jafngildir rúmlega 400 milljörðum íslenzkra króna. Um helmingurinn kemur svo til baka í styrkjum. Svíar eru um 29 sinnum fleiri en við; sambærilegt árgjald (skattur) frá okkur, miðað við fólksfjölda, væri þá um 13,8 milljarðar. Hjálmtýr hlýtur að vilja borga þetta með glöðu geði – og gefa bandalaginu líka vænan skammt af fullveldi okkar í mörgum málum. Það er svo sem ágætt að vita, hvar við höfum þessa framsalsmenn. – Og Björn Heiðdal: ESB er líka á móti selveiðum ...
Jón Valur Jensson, 23.7.2008 kl. 02:06
Það eru ekki upplífgandi upplýsingarnar sem birtast hjá Lottu, Birni frænda og Jóni Val. En mér þykir fróðlegt að heyra af þeirra áhyggjuefnum.
Ég er ekki þeirrar skoðunar að veran í ESB sé eintóm paradísarvist. EES samningurinn bitnaði á ýmsum atvinnugreinum hér á landi, en það eru ekki margir sem mæla með uppsögn hans. Þetta er alltaf spurning um að meta kosti og galla. Ögmundur J er sá eini sem hefur velt því opinberlega fyrir sér. Það hefur engin þjóð sóst eftir útgöngu enn - straumurinn liggur í hina áttina. Útganga úr ESB er ekki þrautalaus, ekki fremur en uppsögn EES samningsins.
Peter Preston skrifar í Guardian um hversu erfitt það er að komast út úr ESB:
Even this route to the exit is littered with obstacles: four decades' worth of directives to unscramble and replace, funding promised or under way to be reappraised, fishing and agriculture deals to be haggled afresh, trade and immigration understandings to be understood again. This won't be like breaking your tennis racket and storming off court. This has to be a long, deadly serious business. The two years or more mentioned in paragraph three aren't there by accident. They portend countless lost nights of sleep and disappointment with EU negotiators who don't want to make it too easy (to discourage others). They show us that getting out will be bruising, not blithe.
Í rauninni er það mín staðfasta skoðun að Íslendingar eiga að hefja aðildarviðræður. Þá fyrst geta Jón Valur, Lotta og Björn frændi farið að ræða málin svo mark sé takandi á. Lokapunkturinn, ef okkur tekst að semja um inngönguskilyrðin, er þjóðaratkvæðagreiðsla.
Í aðdraganda hennar yrði mikil umræða, mikið blogg, en þá eru menn væntanlega að vega og meta raunverulega kosti. Ekki bara sögur um hitt og þetta frá Svíþjóð eða öðrum löndum. Ég tel möguleika á lækkuðum vöxtum og hagstæðara vöruverði einnar messu virði.
(Svo er ekki takandi mark á því sem ég skrifa - ég er eiginlega genginn í ESB, búinn að fá 4 styrki úr sjóðum þess)
Hjálmtýr V Heiðdal, 23.7.2008 kl. 08:37
Sæll Týri minn,
Fyrst þurfum við að átta okkur á því að við fáum ekki inngöngu í ESB án þess að ná hér stöðugleika fyrst. Þegar honum er náð lækka vextirnir og erlent fjármagn verður aðgengilegt á ný, þá er því markmiði náð, síðan get ég ekki séð að við þurfum ESB aðild til að lækka vöruverð enda fullfær um það sjálf ef viljinn er fyrir hendi. Þú þarft þess vegna að finna mun fleiri kosti til að selja þetta concept.
Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 10:33
Ég þakka hreinskilið svar, Hjálmtýr, en ég tek undir með Gunnari.
Jón Valur Jensson, 23.7.2008 kl. 11:16
Sæll Gunnar
Aðildin að ESB getur hjálpað okkur til að halda stöðugleika, t.d. með upptöku Evrunnar. Íslenska krónan er dýr fyrir okkur og ef hugmyndir Björns Bjarnasonar ofl. um Evru án aðildar eru færar þá er það mjög gott fyrsta skref. En eins og málin horfa nú þá er það víst ekki mögulegt. Hvort „við“ getum lækkað vöruverð er m.a. spurning um næga samkeppni. Beinn samanburðir í Evrum, eftir að við höfum tekið hana í okkar þjónustu, skapar þrýsting á verslunina.
Svo er spurning hvort t.d. vísitölubinding lána sé ekki eitt þeirra atriða sem hyrfu örugglega þegar við getum leitað víðar með bankafyrirgreiðslu. Mér þykir það vera skítleg kjör að í hver skipti sem sígarettur og brennivín hækkar þá hækkar afborgunin af húsnæðisláninu mínu. Ég reyki ekki og drekk í hófi. Þetta er auðvitað algjör endaleysa.
Jón Valur, þú ert einn þeirra sem hefur mikið rætt um fullveldisafsalið og hefur tekið upp hugtakið „framsalsmenn“ - og vitnað í lagabálka um landráð. Passaðu þig nú, það er ekki gæfulegt að byrja á því að grafa djúpar skotgrafir meðan að fólk er að byrja að velta hlutunum fyrir sér.
Hjálmtýr V Heiðdal, 23.7.2008 kl. 15:22
Er ekki alltaf verið að bera saman vöruverð í öðrum evrópulöndum við það sem þekkist hér? Það virðist ekki setja neinn þrýsting á verslunina og ekki mun samkeppnin aukast við inngöngu í ESB. Landið okkar verður kyrrt á hjara veraldar hvort sem við erum innan eða utan ESB. Það er nákvæmlega ekkert sem bendir til þess að vöruverð muni lækka við inngöngu nema síður sé, enda hefur verðlag hækkað víða þar sem evran hefur verið tekin upp eftir inngöngu í ESB, eins og t.d. á Spáni sem er kannski ekki alveg sambærilegt við Ísland en þar töldu menn samt sem áður engar forsendur fyrir verðhækkunum. Sumir halda alltaf að grasið sé miklu grænna hinumegin en komast svo að því að það eru jafnvel mun fleiri kalblettir þar en í túninu heima.
Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 23.7.2008 kl. 16:58
Svona gleðikonu-stand með ESB (inn og út, takk fyrir) er ekki gæfuleg framtíðarsýn. Öll svona ríkjasambönd liðast í sundur fyrr eða síðar. Nýleg dæmi eru Júgóslavía, Sovétríkin og Tékkóslóvakía. Eldri dæmi eru Ottoman ríkið og Rómaveldið. Dæmin eru auðvitað miklu fleiri. Það er mér algjörlega hulin ráðgáta hvers vegna margir nútíma Íslendingar vilja gangast erlendum þjóðhöfðingjum á vald. Er sjálfmynd okkar svo illa farin að við þurfum að leita huggunar erlendis? Var sjálfstæðisbaráttan lélegt grín fyllirafta í Köben.
Kannski er skýringin sú að fæstir vita nokkuð í sinn haus þegar kemur að orðum eins og Lissbon samningurinn og sameiginleg varnarstefna ESB. Margir vinstrimenn hlæja að Birni Bjarnasyni og "íslenska hernum". Kannski verður íslenskur her að veruleika með inngöngu í ESB. Ekki mun ESB biðja um gamlar húsmæður úr Vesturbænum til að ráðast á erlend hryðjuverkaríki!
Björn Heiðdal, 23.7.2008 kl. 19:08
Grasið já. Það er grænna. Þetta ætlaði ég að segja og sé að Gunnar gerði það fyrir mig. Takk.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 24.7.2008 kl. 00:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.