Listin að byggja við Laugaveg

Égt hef verið að skoða hugmyndir um byggingu Listaháskólans við Laugaveg.
Ég er hlynntur skynsamlegri uppbyggingu en er á móti niðurrifi húsa með sögu og sál.
Sú hugmynd að leyfa einu gömlu húsi að standa en rífa ósköpin öll finnst mér vitlaus. Húsið sem fær að standa skv. sigurtillögunni, verður líkt og dapurleg áminning um það sem við höfum misst. Skólabyggingin er of stór fyrir sitt nánasta umhverfi og mun eyðileggja götumyndina enn frekar en orðið er. Hvers vegna er íslenskum arkitektum og byggingaverktökum ómögulegt að aðlaga sig að því sem fyrir er? Hvaða uppskrúfaði belgingur er þetta!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Sammála. Varstu búinn að sjá nýbygginguna sem trónir yfir Naustinu í myndasyrpunni á blogginu mínu? Ekkert ósvipað dæmi.

Lára Hanna Einarsdóttir, 1.8.2008 kl. 21:30

2 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Ég leitaði en bloggið þitt er svo umfangsmikið að ég gafst upp. En þar sem ég vinn við Mýrargötuna þá hef ég fylgst með þessari byggingu frá upphafi. Ég tók m.a.s. myndir af þeirri hlið Naustsins sem nú er horfin á bak við ferlíkið. Ég tel að það sé borgaryfirvöldum að kenna að svona ferlíki rísi og smáni húsin sem eru í kring. Það má sjá í Austurstræti og víðar hvaða hugsun hefur ráðið - tilraun til þess að gera miðborgina að „alvöru“ borg að erlendum fyrirmyndum. Há hús byrgja sólarsýn og mynda vindstrengi. Hvorugt er gott í henni Reykjavík. Hún er vindasöm borg á norðurhveli jarðar.

Hjálmtýr V Heiðdal, 2.8.2008 kl. 09:54

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Myndirnar sem ég er að tala um eru efstar í nýjustu færslunni minni - inni í blogginu sjálfu. Ein mynd af framhliðinni og ein af bakhlið.

Ertu nokkuð til í að senda mér myndirnar sem þú tókst af bakhlið Naustsins og leyfa mér að smella þeim þarna inn? Ég var svo vitlaus að taka ekki myndir af bakhliðinni sjálf. Netfangið mitt er lara@centrum.is.

Lára Hanna Einarsdóttir, 2.8.2008 kl. 12:46

4 Smámynd: Kristbergur O Pétursson

Þrautaganga Listaháskólans ætlar engan endi að taka. Hver eru rök þeirra fyrir því að vilja vera í þrengslunum við Laugaveginn, í hundraðogeinum og helst hvergi annarsstaðar? Nú man ég ekki alla söguna, en stóð þeim ekki til boða að byggja í Vatnsmýrinni? Og þar á undan á Norðurbakkanum í Hafnarfirði? Á Norðurbakkanum hefðu þeir haft nægt rými, sjálfsagt einnig stækkunarmöguleika. Í dag væri húsið löngu risið og starfsemi LHÍ farin að hafa gríðarleg áhrif á menningarlíf Hafnarfjarðar á allan hátt og laða að sér gesti í hundraðatali. Að ógleymdu heildarskipulagi Norðurbakkans. Hvers vegna vildu þeir ekki vera í Hafnarfirði? Ég óska þeim alls hins besta og vona að málið leysist, en mig grunar að þeir séu búnir að mála sig útí horn. Hefur þú annars séð hvernig til hefur tekist á Norðurbakkanum?

Kristbergur O Pétursson, 2.8.2008 kl. 13:42

5 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Það getur verið flókið að koma með tillögur þegar búið er að fastsetja rammann sem þarf að fylla inn í. Það er ekki verið að tala um neina smá bygginu þarna sem dreifir svo úr sér yfir stórt svæði eins og báðu megin við Hverfisgötuna.

Ég og vinkonu mín sendum inn tillögu sem má sjá nánar hér:

http://photo.blog.is/blog/photo/entry/605398/

Kjartan Pétur Sigurðsson, 2.8.2008 kl. 13:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband