Allt í steik

grill_steak

Ég heyrði útvarpsauglýsingu frá nýjum matsölu- og skemmtistað sem verður opnaður innan skamms. Nafn staðarins verður skv. auglýsingunni Steak and play.

19. júní s.l. fjallaði ég og fleiri um nýjan veitingastað sem fékk hið undarlega og óskiljanlega nafn Just Food to Go. Allir sem tjáðu hug sinn á blogginu um þetta voru undrandi á afstöðu eigandans til móðurmálsins. Það kom nefnilega í ljós að væntanlegir viðskiptavinir voru Íslendingar en ekki ferðamann.Nýi staðurinn, Steak and play, er ætlaður fjölskyldum að því að virðist. Meðan börnin leika sér þá geta þeir fullorðnu matast í friði. En hvað veldur því að eigandinn kýs að nota erlent heiti á íslenskan veitingastað? Hugmyndaleysi eða snobb? Það vill svo til að orðin Steak og Play eru til í íslenskri útgáfu: steik og leikur. Leiktu og steiktu, steikur og leikur, steikarleikur, leikum og steikjum, gaman-saman,  eða eitthvað annað sem gæti gefið sérstöðu staðarins til kynna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Óskaplega daprar nafngiftir......ekki er World Trade Center betra

Hólmdís Hjartardóttir, 26.8.2008 kl. 11:07

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Spurning hvaða áhrif nafngiftin Just for Kids hafði á viðskiptin; ekki beint spennandi nafngiftir í gangi.

Hrannar Baldursson, 26.8.2008 kl. 15:36

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Mér finnst svo sem allt í lagi með þetta heiti. En eitthvað finnst mér skrýtinn keimur af því að hlusta á Sverri Stormsker auglýsa þetta sem fjölskyldustað. Mér finnst einhvern veginn að skerið eigi að auglýsa frekar hinn staðinn hans Geira vinar síns, það passar miklu betur við þá dónalegu ímynd sem hann hefur skapað.

Haukur Nikulásson, 26.8.2008 kl. 15:41

4 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Það er rétt Haukur, Stormsker er ekki beinlínis fjölskylduvænn. Hann hefur gert út á aðra ímynd; meira svona fullorðins. Blanda af kerksni og tvíræðni.

Hjálmtýr V Heiðdal, 26.8.2008 kl. 17:09

5 Smámynd: Ingibjörg Stefánsdóttir

Nafnið er ömurlegt en sjálf myndi ég hvort sem er aldrei skipta við stað í eigu Geira Goldfinger.

Ingibjörg Stefánsdóttir, 27.8.2008 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband