Handaband fyrir handbendi

1771573Ég er enn að hugsa um tilurð hins nýja meirihluta í borginni. Ólafur F fyrrverandi borgarstjóri hefur marglýst því að hann hafi verð gabbaður til samstarfs með málefnasamningi sem var of góður til þess að geta staðist. Nú hefur komið í ljós að það reyndist rétt. Helstu hugðarefni Ólafs, friðun sögulegra húsa og götumyndar við Laugaveginn, náttúruvernd, stöðvun Bitruvirkjunar og vera flugvallarins í Vatnsmýri sett á blað og Sjálfstæðismennirnir skrifuðu uppá þetta allt saman. Og Ólafur undi glaður við sinn málefnasamning, enda innsiglaður með handabandi við Kjartan M og Villa gamla góða. Betra gerist það ekki í pólitíkinni. Ólafur sprengdi Tjarnarkvartettinn í trúnni á handabandið, Sjálfstæðisflokkurinn komst aftur inn og í fyllingu tímans fékk Ólafur ný skilaboð „vertu úti“. Handsöluðu málefnin hans Ólafs hurfu á fyrsta degi hins nýja samstarfs við Óskarinn. Handabandið var aldrei alvöru, þetta var s.k. gabbhreyfing. Mikið notuð í íþróttum og greinilega viðurkennd í stjórnmálum.

Í þessu ljósi er áhugavert að fylgjast með Hönnu Birnu, nýja borgarstjóranum. Hún hefur að sjálfsögðu verið í mörgum fjölmiðlaviðtölum eftir að það samstarfinu við Ólaf F. var rift og Óskarsverðlaunahátíðin hófst (Óskar uppskar margvísleg verðlaun fyrir sig, vini sína og flokkinn). Ég gríp hér niður í viðtal á Rás 2 21. ágúst s.l.Fréttamaður spyr: „Talandi um Bitruvirkjun, nú ætlið þið að hefja undirbúning á henni að nýju. En þeim var hætt efrtir úrskurð Skipulagsstofnunar sem taldi of mikil óafturkræf umhverfisáhrif af virkjuninni. Er ykkur stætt á að fara út í þessar framkvæmdir með þann úrskurð á bakinu?  

Hanna Birna: Við förum ekki út í framkvæmdir, við höldum áfram rannsóknum á svæðinu. Við höldum áfram þessum undirbúningi. Það er aðalatriðið…..

Fréttamaður: En til hvers að fara út í rannsóknir ef ekki á að framkvæma?

Hanna Birna: Nú af því að það er okkar skoðun í þessum meirihluta að það eigi að fara í þessar framkvæmdir.“

Svör Hönnu Birnu eru einnig gabbhreyfingar; „ekki framkvæmdir - förum í framkvæmdir“. „Aðalatriðið“ er í raun aukaatriðið.

Í næstu kosningum kemur í ljós hvort Sjálfstæðisflokkurinn kemst upp með þessi vinnubrögð. Framsókn hverfur sem betur fer af vettvangi og Frjálslyndir sömuleiðis. Það verða ekki mörg tækifæri til þess að dubba litla flokka upp í borgarstjórastól eða aðrar vegtyllur gegn því að starfa með Sjálfstæðismönnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Björn Heiðdal

Þó Óli hafi verið merkilegur með sig og allt það.  Þá voru málefnin góð fyrir utan kannski flugvöllinn.  Hanna Birna virðist vera óttalega fölsk eins og þetta viðtal sýnir glögglega.  Atvinnu póltíkus með margklofna tungu og nýja lyga á hverjum degi.  Allt til að þurfa ekki að viðurkenna spillinguna fyrir venjulegu fólki.  Fólki sem kaus hana í síðustu kosningum og Villa vitlausa.  Þetta lið sem stýrir Sjálfstæðisflokknum hefur nákvæmlega engan áhuga hagsmunum heildarinnar.  Hanna Birna og dvergarnir sjö vinna fyrir flokksgæðinga.  Mokandi gulli og gersemum í allar áttir nema til mín og þín.

Björn Heiðdal, 26.8.2008 kl. 21:15

2 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæl Halldóra.

Ég tel að þessir flokkar muni ekki ná inn manni í næstu kosningum. Óróinn og upphlaupið í Ráðhúsinu á rætur sínar í tilveru þeirra. Kjósendur verða ekki búnir að gleyma því eftir tæp tvö ár. Framsókn er að auki búin að missa marga félaga úr framlínunni og hverjum slíkum fylgir hópur. Frjálslyndir eru ekki beint samstíga, það sést á viðbrögðum við ætlun Ólafs F að ganga í flokkinn. Svo er sá flokkur búinn að afhjúpa sínar hneigðir í málum s.s. flóttamannamálinu á Akranesi. Það er of stutt í kosningar - og ástandið hefur aldrei verið svona í borgarstjórn Reykjavíkur. Það verður auðveldara fyrir kjósendur að muna hvernig mál hafa þróast með þátttöku þessara flokka. Þetta er það sem ég byggi minn spádóm á. En spádómur er auðvitað bara spádómur og getur verið litaður af óskhyggju hjá mér.

Hjálmtýr V Heiðdal, 27.8.2008 kl. 08:27

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Manstu nokkuð í hvaða þætti á Rás 2 þetta viðtal var? Finn þetta ekki í fljótu bragði.

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 12:27

4 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæl

Þetta var flutt tvisvar: http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4372740/2

Hjálmtýr V Heiðdal, 27.8.2008 kl. 12:59

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Takk fyrir... Hún er ekki nefnd í yfirlitinu, ég flaskaði á því. Er að safna heimildum og tek allt svona upp - ef ég veit af því og finn það. Því miður fer ýmislegt fram hjá mér.

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.8.2008 kl. 13:08

6 identicon

Það er nú ekki sérlega fallegt að óska einhverjum pólitískum dauða eins og þú gerir en það verður þú að eiga við sjálfan þig.

Ég vona að þér verði ekki að ósk þinni, því þá höfum við engan málsvara fyrir stóriðjustefnu og virkjanaframkvæmdir og þær framfarir sem þeim fylgja, nema Samfylkingin muni breyta um kúrs, sem þeir hafa gert að hluta til í ríkisstjórninni með Sjálfstæðisflokknum, a.m.k. fer lítið fyrir stóriðjustoppinu sem var slagorðið fyrir síðustu kosningar.  Samfylkingin er farin að átta sig á því að þetta friðunarbull hefur sín takmörk og ferðinni verður ekki haldið áfram nema með nýtingu auðlindanna, virkjunum og stóriðju.

Eins og þú sagðir þá kom Ólafur F flestum sínum hugðarefnum í málefnasamninginn, gallinn hinsvegar við þessi hugðarefni var sá að þau þjónuðu ekki hagsmunum borgarbúa nema síður sé.  Ég get t.d. ekki séð hvaða hag hinn almenni borgarbúi hafði af því að kaupa kofana við laugaveginn á þessu háa verði, eða yfir höfuð að varðveita 19. aldar götumynd Laugavegarins sama hvað!! Auðvitað má varðveita sérstök menningarverðmæti, en þessi varðveislu og friðunarárátta er komin langt út fyrir öll velsæmismörk.  Ætli við megum ekki þakka fyrir að búið sé að rífa gömlu braggahverfin.

Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 16:01

7 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæll Gunnar

Það sem þú kemur ekki auga á („ég get t.d. ekki séð hvaða hag hinn almenni borgarbúi hafði af því að kaupa kofana við laugaveginn“) er hið menningarsögulega gildi. Borg sem ekki heldur í fortíð sína verður ömurleg borg. Það er eins með fjölskyldur. Þú ert í lausu lofti sjálfur ef þú þekkir hvorki haus né sporð á þínum forfeðrum. Sjáðu t.d. hvað fólk sem veit ekkert um blóðforeldra sína leggur á sig til þess að komast að hinu sanna um uppruna sinn.

Það er ekki hægt að reikna allt í krónum og aurum. Þótt húsin hafi verið keypt fyrirstórfé þá er það ekki glatað fé. Annarsvegar verða húsin seld til einkaaðila eftir endurnýjun og svo munu ókomnar kynslóðir njóta þessa gjörnings.Það sama á við um virkjanamálin og náttúruna. Það verður snautlegt fyrir komandi kynslóðir ef virkjunarsinnar fá allar sínar óskir uppfylltar. Stóriðjustefnan erúr sér gengin hugmynd - skammtímahugsun.

Hjálmtýr V Heiðdal, 27.8.2008 kl. 16:47

8 identicon

Hvenær telst hús hafa menningarsögulegt gildi?  Myndir þú t.d. berjast gegn niðurrifi Hagkaupa í Skeifunni?  Og hvenær öðlast morgunblaðshöllin þennan sess?  Hugsaðu þér þau menningarsögulegu gildi sem hurfu við niðurrif Síðumúlafangelsisins, eða hafði það hús kannski ekki náð þessum virðulega aldri og þess vegna í fínu lagi að rífa það þrátt fyrir merkilegan þátt í sögunni.  Svona væri hægt að telja upp ótal hús og byggingar sem hafa gegnt mikilvægu hlutverki en hafa síðan verið rifin enda er það þannig með hús og byggningar yfirleitt að þeim er ekki ætlað að standa að eilífu.  Ég tel einfaldlega takmörk fyrir því hversu langt við göngum í þessum verndunarmálum og einhvernveginn hef ég það á tilfinningunni að sumir vilji einfaldlega vernda allt og standa í vegi fyrir eðlilegri endurnýjun.

Varðandi virkjunarmálin má minna á að við höfum virkjað og byggt uppistöðulón kynslóðum saman og ég get ekki séð að þær kynslóðir sem á eftir komu hafi þurft að gjalda þess, þvert á móti hafa þessi mannvirki átt stóran þátt í að skapa þá velsæld sem við búum við á Íslandi í dag og gert okkur þannig kleift að njóta ávaxtanna af virkjanaframkvæmdum forfeðranna.  Þú segir stóriðjustefnuna úr sér gengna hugmynd, en hún er nú samt hugmynd sem hefur verið framkvæmd og skilað árangri og gríðarlegri þekkingu sem má ekki glatast 

Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband