Fólk á flótta

Heimsókn 5Þegar hrakið flóttafólk ber að ströndum okkar lands er ástæða til að velta því fyrir sér hvers vegna þetta fólk hefur hrakist úr sínum heimahögum. Palestínufólkið sem komið er til Akraness er ekki að flýja í fyrsta sinn. Þetta eru afkomendur fólksins sem stofnun Ísraels hrakti í útlegð til Íraks og svo hefur það sjálft orðið að flýja sökum stríðsátakanna í því landi. En það er enn verið að fjölga palestínskum flóttamönnum. Myndin sem hér birtist er tekin á heimili fjölskyldu sem býr í Jerúsalem.  Ummerkin, sem minna á afleiðingar jarðskjálftanna í Hveragerði, eru afleiðingar heimsókna ísraelskra hermanna. Þeir vaða inn á heimilin, umturna öllu og gera jafnvel göt á veggi til þess að brjótast inn í næstu íbúð. Þetta er gert í þeim tilgangi að gera íbúunum lífið óbærilegt í þeirri von að þeir flýi og gyðingar geti yfirtekið heimili þeirra. Næsta stig aðgerða er niðurrif, þá mæta jarðýtur hersins á staðinn og jafna húsin við jörðu. Alls er talið að það sé búið að eyðileggja 18,000 hús með þessum hætti.  Og Ísraelar eru enn að, hið yfirlýsta markmið Síonista er að ná yfirráðum yfir öllu landi Palestínumanna. Þrátt fyrir alla fundina í s.k. friðarferli er enn verið að fjölga landtökubyggðum og jafna heimil Palestínumanna við jörðu. Um leið og við bjóðum flóttamennina hjartanlega velkomna til Íslands þá er vert að hafa það í huga að hörmungum Palestínsku þjóðarinnar er ekki lokið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í ágætum pistli í fréttaþættinum 60 mínútur var því lýst skilmerkilega hvernig Ísraelsmenn eignast smám saman öll hús og húsnæði Araba í Jerúsalem og víðar. Ísraelsmenn þráast við að gera borgina að því, sem hún ætti að vera, opinni höfuðborg beggja þjóðanna, því að með tímanum munu þeir hvort eð er hafa það af að eignast hana alla og uppfylla þar með eina helstu hugsjón Zíonísmans.

Ómar Ragnarsson, 9.9.2008 kl. 14:19

2 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Í Ísrael skiptir öllu máli hverra manna þú ert og hver er þín trú - það er með öðrum orðum ekkert jafnrétti þar. Og ekki raunverulegt lýðræði heldur þar sem 20% þjóðarinnar er ekki frjálst að búa nema á svæðum sem ríkið skammtar. Jerúsalem skal vera borg gyðinga segja Síonistarnir og vinna ötullega að því marki með því að hrekja Palestínumenn burt. Þetta þætti áreiðanlega skrítið á Íslandi ef að t.d. Þingeyingur væri útilokaður frá því að kaupa fasteign í Reykjavík af því að hann er Þingeyingur. Eða að skipulega væri unnið að því að hrekja Vestmanneyinga frá t.d. Akureyri. Niðurstaðan er sú að Ísrael er ríki kynþáttahyggju.

Hjálmtýr V Heiðdal, 10.9.2008 kl. 21:12

3 Smámynd: Björn Heiðdal

Er ekki smá rasismi hollur fyrir alla og partur af hópeðlinu sem er fast í genum okkar?  Annars ættir þú að skrifa pistill um þessa svakalegu stefnu íslenska ríkisins að gera Ísland að láglaunasvæði fyrir erlend álfyrirtæki.  Veik króna=lág laun.

Björn Heiðdal, 11.9.2008 kl. 07:23

4 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Hvers vegna skrifar þú ekki greinina?

Smárasismi? Hvar eru mörkin??

Hjálmtýr V Heiðdal, 11.9.2008 kl. 08:12

5 Smámynd: Björn Heiðdal

Þetta er svo alvarlegt mál og fáir virðast vera búnir að fatta að hér þarf einhvern þungavigtarmann eða klæðaskipting sem Mogginn flíkar reglulega til að skrifa um þetta mál.  Púff, þetta er lengsta setning sem ég hef nokkurn tíma skrifað.  Það er stutt þangað til að við verðum komin fyrir aftan Albaníu.  Reyndar hjálpar þetta erlendum og innlendum fjárfestum að kaupa eignir á Íslandi á undirverði.  Langt undir eðlilegu verði!  Mínar tekjur hafa lækkað um 40% frá áramótum!  Til hamingju Ingibjörg Sólrún.  Allt sem þessi kona snertir breytist í gull fyrir sérhagsmunaaðila.  Í þessu tilfelli erlenda auðhringa og íslenska bankaþjófa. 

Björn Heiðdal, 12.9.2008 kl. 07:00

6 identicon

Hér: http://nornabudin.is/sapuopera/ má líta upplifun íslenskrar konu á ástandinu í Palestæinu þessa dagana. Hryllingur.

Hulda Hákonardóttir (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 21:23

7 identicon

Palestínu - átti það að vera.

Hulda Hákonardóttir (IP-tala skráð) 14.9.2008 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband