Arnþrúður er borubrött

adimage.phpArnþrúður Karlsdóttir á útvarpi Sögu er borubrött þessa dagana. Enda ástæða til þar sem útvarp Saga hefur mælst með mjög góða hlustun í nýjustu könnun á áhorfi, hlustun og lestri fjölmiðla. Í Reykjavík mælist stöðin með um 38% hlustun ef ég man rétt  og það verður að teljast mjög gott.

Sjálfur hlusta ég oft á Sigurð G. Tómasson og einstaka sinnum á aðra dagskrárliði. Í gær heyrði ég Arnþrúði og aðra konu (náði ekki nafninu) ræða um heima og geima. Eitt atriði í máli Arnþrúðar finnst mér fáránlegt; hún réðist að samtökunum Amnesty International og talaði í niðrandi tón um starfsemi AI. Hún sagði að samtök sem þessi væru alltaf á höttunum eftir athygli og gaf í skin að þau fiskuðu í gruggugu vatni. Þekking Arnþrúðar á AI virðist ekki rista djúpt og ætti hún að kynna sér starfsemi samtakanna og hlutskipti þeirra mörgu manna sem þau hafa stutt um allan heim. Annað sem einkennir þennan þátt Arnþrúðar og vinkonu hennar eru hálfkveðnar aðdróttanir um menn og málefni. Fremur óábyrgt og ósmekklegt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þetta væri það eina sem þú gætir fundið að AÞK, þá væri stöðin hennar ekki svo slæm. Annars er skondið að hún skuli vera svona ánægð með niðurstöður könnunarinnar. Það er ekki svo lítið sem hún er búin að takka Capasent niður, talað endalaust um hvað þeir standi ófaglega að öllum könnunum og ég veit ekki hvað og hvað.

Skúli O (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 19:04

2 identicon

Hún segir alltaf að það sé engin vandi að kaupa niðurstöður á Gallup,og það þurfi alltaf að koma fram hver kaupir könnunina.En ég er búin að skoða Gallupvefinn og þar finn ég ekki neitt um að þeir hafi gert skoðanakönnun fyrir Útvarp Sögu.

anna (IP-tala skráð) 20.9.2008 kl. 22:45

3 Smámynd: Júlíus Valsson

Útvarp Saga er eina frjálsa útvarpstöðin hér álandi.  Við eigum að standa vörð um þá stöð.  Það er eðlilegt að gagnrýna  AI er ekki síður en önnur líknarfélög og félagasamtök. Það sýnir bara að Arnþrúður hefur bein í nefinu.
Styðjum Útvarp Sögu!

Júlíus Valsson, 21.9.2008 kl. 01:13

4 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Slegjudómar eru ekki það sama og gagnrýni. Það sem Arnþrúður sagði getur ekki flokkast undir gangrýni, hún var að ýja að því að AI væri úti eftir athygli athyglinnar vegna. Ekki vegna málefna. Það verður að hafa það í huga að félagar í AI og öðrum álíka samtökum þrá ekkert frekar en að samtökinj verði verkefnalaus. En því verður ekki að heilsa í fyrirsjáanlegri framtíð.

Ég vil ekki vega að útvarpi Sögu, ég tel að stöðin gegni lýðræðislegu hlutverki sem óháð stöð. En ég get ekki samþykkt allt sem sagt er í hljóðnemana og alls ekki þegar efnið er ómerkilegt og ómálefnalegt. Það vinnur ekki með lýðræðinu.

Hjálmtýr V Heiðdal, 21.9.2008 kl. 09:19

5 identicon

Útvarp saga er ekki frjáls. Það þarf ekki annað en að heyra hvernig talað er um Baug og þeirra kompaní. Hún smjaðrar þvílíkt fyrir þeim í viðtölum að manni verður illt. Svoleiðis viðtöl kallar hún með fyrirlitningu "drottningarviðtöl" þegar aðrir á öðrum stöðvum taka þau. Há henni heitir þetta að "leyfa mönnum að segja sína sögu án þess að vera truflaðir" Síðan fer hún út yfir öll velsæmismörk þegar hún beinlínis tekur fólk fyrir og hakkar það í sig, aðallega konur. Dæmi: Margrét Sverrisdóttir, Jónína Benediktsdóttir og Hildur Petersen. Sjálf hefur hún sagt þegar hún hefur sætt gagnrýni þá sé það í rauninni bara öfund, ætli það þýði þá að hún öfundi þessar konur?

Skúli O (IP-tala skráð) 21.9.2008 kl. 12:27

6 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ég get ekki hlustað á Arnþrúði og viðmælendur hennar. Sleggjudórmar, fyrirlitning og eins og Skúli segir hvernig hún hakkar fólk í sig og er með hálfkveðnar vísur.

Það er aftur á móti gaman að hlusta á Sigurð G. - og ég tala nú ekki um hann og Guðmund félaga hans.

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 1.10.2008 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband