Hvar er hún Lána Lína núna?

Lána LínaGlitnismálið er stórmál, en þó aðeins ein birtingarmynd ástandsins. Þú og ég, skuldararnir með mislanga hala, eru fórnarlömb hins brokkgenga kapitalisma. Góðærið, þegar almenningur átti að kaupa hlutabréf, er horfið. Krónan í kasti, sennilega dauðvona. Mörg fyrirtæki dauðvona í óvinveittu umhverfi okurvaxta, gengisrúllettu og verðbólgu. Geir H sagði í fréttum daginn fyrir Glitnisbombuna að ekkert sérstakt væri í gangi. Hann var nýkominn heim og var að kynna sér málin. Næstu nótt er hann við jarðaför nýfrjálshyggjunnar. Við hlið hans stendur Davíð, sem margir telja að sé primus mótor aðgerða sem miði að því koma höggi á Baugsmenn. Fáránleg hugdetta? Veit ekki, en betra hefði verið að hann væri ekki á þessum vettvangi með öll þessi völd. Eftir allt sem á undan er gengið. Það myndi að minnsta kosti draga úr tortryggninni og slá á uppnámið. Og hver verður eftirleikurinn? Voru fleiri kostir í boði - aðrir en að láta almenning punga út hluta erlenda lánsins sem verður dýrt. Frásögn Þorsteins Más Baldurssonar í Kastljósi er merkileg saga. Hann segir beinum orðum að Davíð hafi komið þessu í kring með brögðum. Og auðvitað í þeim helsta tilgangi að komna þungu höggi á Baugsmenn þegar Lána Lína yfirgaf þá um stund. Hvað eiga Jón og Gunna að halda?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Baukur

Góð ábending Hjálmtýr. Sagan verður skrifuð og þá er ég viss um að Davíð Oddsson fær ekki góða dóma fyrir störf sín í Seðlabankanum. Er að lesa veröld sem var: eftir Stefan Sweig,ð en þar segir frá uppgangi nasista fyrir stríð á árum millistríðsáranna. Þar er merkilegt að lesa um mengun þjóðlífsins í Æyskalandi og Austurríki- þegar ótrúlegasta fólk fór að samþykkja árásir á gyðinga sem höfðu það eitt unnið til að vera vinnusamt og stöndugt fólk. Hægt og bítandi náðu nasistar að mynda samfelda andúð á gyðingum jafnvel meðal menntamanna og listamanna sem vissu betur s.s. að þeir höfðu ekkert til saka unnið annað en t.d. að vera afburðafólk hvert í sinni grein lista.

Það sem er að gerast hérlendis er að forystumenn í þjóðlífinu tala svo um athafnamenn og fyrirtæki þeirra að þar sé græðgishugsjónin ráðandi og sagt að þeir geti sjálfum sér um kennt hvernig staðan er, og seðlabankastjóri m.a. kallaði götustráka.

Skaðvaldurinn er í Seðlabankanum.

Bjarni Baukur, 1.10.2008 kl. 15:44

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Afhverju var ekki betra að láta Glitni fara á hausinn?  Hvaða eignir hefðu þá farið annað?  Þetta vantar alveg inn í umræðuna.

Björn Heiðdal, 2.10.2008 kl. 04:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband