4.10.2008 | 14:42
Aðgát skal höfð í nærveru þjóðar
Þegar þjóðin lendir á kapitaliskum bömmer þá verður að útskýra málin svo hún átti sig á ástandinu og leiðist ekki út í örvæntingu. En opnuviðtal Morgunblaðsins við Hannes Hólmstein er ekki það sem þjóðin þurfti. Erum við ekki búin að fá nóg af þessu ævintýri hans um að græðgin sé góð?
Lýðheilsustöð og landlæknir hafa beðið fjölmiðla um að fara varlega. Þessi hrekkur Moggans gæti komið illa við viðkvæmar taugar hlutafjáreigenda sem keyptu nokkur bréf í góðri trú á hið kapitaliska náttúrulögmál (ef trúa má HHG). Hannes segir: Sumir gera mistök og þeir hætta rekstri. Aðrir gera ekki mistök og þeir halda áfram rekstri. Þetta er lögmál kapitalismans og þegar á bjátar kemur þetta lögmál býsna vel í ljós. Lögmálið lemur skyndilega í haus þeirra sem keyptu hlut fyrir 2- 3 milljónir í Glitni. Voru það mistökin sem Hannes talar um? Er þetta ekki grundvöllur fagurgalans hjá Hannesi ofl. sem hafa lagt áherslu á að almenningur taki þátt í dansinum með hlutabréfin? Í kapítalisma fara menn á hausinn, en láta ekki hausinn, eins og í miðstýrðu hagkerfi skrifar Hannes. Fólkinu sem nú hefur tapað milljónum líður örugglega betur þegar kostirnir eru svo skýrt upp dregnir af þeim sem vita best.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:49 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.