4.10.2008 | 15:27
Krísan hjá Krossinum
Gunnar í Krossinum sér verk djöfulsins í efnahagslægðinni. Sjálfur Antikristur kominn á kreik: Heiminum mun þá birtast maður sem hefur öll ráð í hendi sér. Hann mun leysa allar efnahagskrísur en um leið sölsa undir sig heiminn. Sá maður er antíkristur. Þetta skrifar Gunnar á krossinum (Fréttabl. 04.10), og er ekkert að skafa utan af því. Gunnar sá það allt fyrir sem nú bagar oss, skrifaði bók 1991 og ekkert kemur honum á óvart. Svo veit hann að arabar eru að leggja undir sig Evrópu og meira að segja komnir til Íslands (?). Menn hafa áttað sig á því að Mammon hefur brugðist skrifar Gunnar og gefur skít í kenningar Hannesar Hólmsteins - sem heldur því fram að Mammon sé náttúrulögmál. (sjá blogg mitt Aðgát skal höfð í nærveru þjóðar) Af tvennu mjög illu þá tel ég að Hannes sé skemmtilegri en Gunnar.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:32 | Facebook
Athugasemdir
Ég las þetta viðtal og hló dátt. Er ekki búin með HHG ennþá.
En ég bar þá kumpána saman (og þó ekki) í þessum pistli í janúar sl. Þeir eiga eitt sameiginlegt - að minnsta kosti. Annað sem þeir gætu átt sameiginlegt er öfgatrú en ekki á þann eða það sama þó.
Lára Hanna Einarsdóttir, 4.10.2008 kl. 15:31
Fín grein hjá þér.
Hjálmtýr V Heiðdal, 4.10.2008 kl. 15:34
Þetta er ekkert flókið. ESB er ríki djöfullsins og hann heitir Sarkozy. Bandaríkin koma líka sterk til greina og þá George Bush eða frú Palin sem djöfullinn, Obama gæti líka verið þessi antikristur.
Björn Heiðdal, 4.10.2008 kl. 17:04
Hef alltaf haft lúmskt gaman af Gunnari og vel til fundið að líkja honum við Hannes H. Sumir virðast nefnilega lítinn mun sjá á stjórnmálum og trúarbrögðum. Að því leyti eiga þeir margt sameiginlegt með múslimum, sem telja aðskilnað stjórnmála og trúar óhugsandi. ....Að arabar séu að leggja undir sig Evrópu.... Núna eru Arabar komnir til Grænlands og Svalbarða. Ahmed Akkari, sem kom við sögu í tengslum við múhameðs mynda deilurnar í Danmörku var að flytja til Grænlands og einhver írani til Svalbarða. Ætli þeir séu að boða eyðimerkurtrúna á heimskautaísnum? Hvað ætli Gunnar segi við því?
Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 07:37
Það eru ekki allir múslimar fylgjandi tengingu trúarinnar við allt sem hrærist, þ.m.t. stjórnmálum. Svo eru þeir misjafnlega trúræknir líkt og kristnir menn og þeir sem aðhyllast gyðingatrú. Múslimi á Grænlandi getur varla talist upphafið að „islamiseringu“ Grænlands. Ekki frekar en að vera Íslendings í S-Arabíu boði einhver tíðindi um breytingar í því landi. Gunnar gerir líkt og aðrir lýðskrumarar - þeir fiska í gruggugu vatni. Sem þýðir að það sem þeir segja er síst hið rétt, miklu fremur eitthað bull sem þeir telja sig geta troðið í saklausar sálir. Og hentar þeim betur en upplýsandi og lýðræðisleg umræða.
Annars er það merkilegt að sumir skuli ganga svo langt að meta menn fyrst út frá uppruna og trú. Það er ekki í anda allra lýðræðislegra sáttmála, stjórnarskráa og alþjóðasamninga um mannréttindi. Þar er skýrt kveðið á um jafnan rétt manna án tillits til uppruna, trúar, stjórnmálaskoðana og litarháttar. Þeir sem hér andskotast hvað mest út í araba eða svertingja (þótt það sé ekki „inni“ núna) eru ekkert betri en íslamistar sem vilja skilgreina allt og alla út frá eigin „himnasendum“ hugmyndum. Þykjast þeir þo vera að berjast gegn einhverri vá sem þeir sjálfir mála á vegginn.
Hjálmtýr V Heiðdal, 5.10.2008 kl. 08:34
Ég dvaldist í Íslamsríki nokkru afrísku um nokkurt skeið á sjöunda áratugnum er síðan skíthræddur við Íslam og áhangendur þeirra trúarbragða -- treysti þeim ekki fyrir horn. Geri mér ljóst að þetta viðhorf mitt heitir núna ýmsum illum nöfnum, en brennt barn forðast eldinn.
Góð kveðja
Sigurður Hreiðar, 5.10.2008 kl. 13:43
Sæll Sigurður
En hversu langt treystir þú Gunnar á krossinum?
Ekki ekki ætla ég að stimpla þig sem öfgamann vegna varúðar þinnar gagnvart því sem þú hefur kynnst. Sjálfur hef ég þá afstöðu að taka öllum trúarbrögðum með varúð. Trú er einkamál að mínu mati. Menn geta trúað öllu - góðu eða illu í friði fyrir mér. En vinsamlegast haldið mér fyrir utan eigin vangaveltur. Trú er vandmeðfarin. Hún er alltaf byggð á því sem mönnum hefur ekki enn tekist að færa góðar sönnur á. Þetta er tilfinningamál og það eiga menn að fara vel með. Hinsvegar finnst mér afleitt þegar að menn sem finna eitthvað athugavert við trú og siði annarra gera úr því mál. Gildir þetta jafnt um múslima og aðra.
Og svo eru það hófsemisfólkið sem lendir á milli þegar þeim öfgatrúuðu hefur tekist að gera allt vitlaust.
Hjálmtýr V Heiðdal, 5.10.2008 kl. 14:36
Gunnar í Krossinum er hættulegur maður. Það er hættulegt að ganga til liðs við Krossinn. Þar ríkir kvennakúgun og kvenfyrirlitning. Þar eru samkynheigðir úthrópaðir. Þangað þarf að borga tíund.
Hannes Hólmsteinn er enn bara hlægilegur
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 6.10.2008 kl. 14:03
Sæll aftur Hjálmtýr og svara vil ég spurningunni: Ég man yfirleitt ekki eftir því að Gunnar sé til en þegar ég man eftir honum dettur mér ekki í hug að treysta honum til neins -- nema slá ryki í augu/eyru þeirra sem veikir eru fyrir. Og þykir þá ekki gott að vita af honum og lýðskrumi hans. -- Var eitthvað minnst á Anti-Krist?
Sigurður Hreiðar, 6.10.2008 kl. 15:29
Ég veit ekki mikið um þennan Anti-Krist. Er hann einskonar fúll á móti hjá himnaliðinu? Annars er merkilegt að velta fyrir sér þessu umboði sem Gunnar á krossinum telur sig hafa. Það er mjög víðtækt, spannar himinn og haf ásamt jörðu og nær trúlega einhverja metra niður í moldina líka.
Hjálmtýr V Heiðdal, 6.10.2008 kl. 21:39
Mér datt nú bara í hug Gunnar sjálfur -- og aðrir álíka sem gera sér mat úr veikgeðja fólki sem auðvelt er að hræða/sefja.
Sigurður Hreiðar, 6.10.2008 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.