5.10.2008 | 16:12
Komnir uppá dekk
Það gladdi mitt gamla maóistahjarta að sjá gamla foringjann Kristján Guðlaugsson í Silfri Egils. Nú eru tveir fyrrv. trotskyistar og tveir fyrrv. maóistiar hagfræðiráðgjafar á æðstu stöðum. Og Kristján kominn í Silfrið. Róttæklingarnir eru komnir uppá dekk. Þetta eru skrítnir og skemmtilegir tímar. Pétur Blöndal er nokkuð frakkur að rukka Kristján um lausnir á efnahagsvandanum - í beinni útsendingu. Hann er á launum sem nema sennilega rúmum 700þús kr. við það að stýra landinu. Svo heimtar hann lausnir hjá manni utan úr bæ. Egill Helgason benti réttilega á að ósköpin sem nú dynja yfir komu á þeim tíma sem Pétur átti að standa vaktina. Og svo má ekki ræða um það hverjir bera ábyrgðina - fortíðin vekur ekki áhuga sumra. En fólkið sem var ekki í veislunni er nú kallað til - allir saman nú syngja pólitíkusarnir - þegar það þarf að hreinsa upp og borga reikningana.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:43 | Facebook
Athugasemdir
Það var gaman að sjá Stjána Guðlaugs í Silfrinu. Rifjaði upp gamla góða tíma.
Jens Guð, 5.10.2008 kl. 16:50
Jú, Jú " borga reikningana". En hver kom þessu öllu af stað ? Hver er hann þessi Davíð, sem ekki aðeins kom Glitnisbanka á kaldan klaka - bankarán aldarinnar - sagði múlti-milljarða-þotu-drengurinn - heldur mun þessi Davíð einnig vera ábyrgur fyrir gjaldþrotum ýmissa stór-fjárfestingabanka um víða veröld !- Sendum nú alla Trotskyista undir forystu þjóðardýrðlingsins Steingríms J., og sjáum um að "henda" þessum Davíð úr landi !
"Fram nú þjáðir menn í þúsund löndum !"
Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 17:09
Flestir þekkja Stjána vegna textanna sem hann samdi við lögin sem við kyrjuðum á sínum tíma. Þetta eru mergjaðir textar og skemmtilegir. Hér er bútur: Í Kreml er allt með kyrrð og spekt / í Kreml er bara notalegt / Enginn veitir því eftirtekt að auga er haft með honum / því KGB er leynilegt og leyfir enga uppátekt / sem valdið gæti vægri sekt eða vist í fangelsunum.
En annað var sérstakt við þetta Silfur Egils. Pétur Blöndal sagði að allt væri falt, árnar, vötnin, hvaðeina. Þetta kallaði Ingibjörg Sólrún að selja ættarsilfrið.
Hjálmtýr V Heiðdal, 5.10.2008 kl. 19:35
Ég man ekkert eftir Kristjáni en mikið djö... var hann góður í Silfrinu! Textinn er ansi skondinn.
En hvar sagði Ingibjörg Sólrún þetta með ættarsilfrið? Manstu það?
Lára Hanna Einarsdóttir, 5.10.2008 kl. 19:47
Það var eitthvað í sambandi við sölu Símans.. eða eitthvað annað... ég man ekki fleiri atriði í kringum þetta.
Hjálmtýr V Heiðdal, 5.10.2008 kl. 21:59
Hér allt kvæðið:
Í Kreml er allt með kyrrð og spekt í Kreml er bara notalegt
Enginn veitir því eftirtekt að auga er haft með honum
því KGB er leynilegt og leyfir enga uppátekt
sem valdið gæti vægri sekt eða vist í fangelsunum.
Og til að velsæmis og kurteisi í hvíventa sé gætt
er hverjum manni skylt að njósna um sig og sína ætt
svo ríkið geti samið góðar áætlanir um
hvað eigi að hafa marga í fangabúðunum.
Þótt Kosygin með kurt og pí kunni að stæra sig af því
að röð og regla ríkir í ráðstjórnunum hans
er vert að gefa gaum að því að gróðinn stýrir því á ný
og kreppan kemur kjölfar í kapitalismanum
Allir þiggja mútur til að auka hagnaðinn
og afurðirnar fara beint á svartamarkaðinn
En ríkið greiðir forstjórunum fríðindi á laun
ef framleiðslan á pappírnum er meiri en í raun
En ef verkafólki verður á að vilja meiri aur að fá
er lögreglunni sagt að sjá um sósíliskan aga
Til Síberíu að senda þá sem sjúkir eru af frelsisþrá
því í Sovétríkjum sérhver á sama rétt til laga
Já allir eru jafnir fyrir yfirvöldunum
og eiga rétt á handjárnum í réttarhöldunum
En ríkið gefur endanlega úrskurðinn um það
hver eigi að fara á fangahæli eða hver í sturtubað
Sovétríkin skarpur skók, skjálfti þegar Bréfsnef tók
þá ákvörðun að kaupa kók kananum til góða
Arðræninginn auð sinn jók, allt er lært á sömu bók
og allir maka auðsins krók, ef þeir eygja minnsta gróða
Inn í landið streymir fjármagn Ameríku frá
en fyrir alþýðuna er samt sem áður litla vinnu að fá
því ríkið lætur flytja þetta fjármagn Indlands til
og fær það aftur hundraðfalt í vexti og skuldaskil.
Já faisminn er orðinn að einveldi í fólksins stað
þótt sumir kjósa að kalla það Sovétkommúnisma
þá vil ég minna menn á það að misjafnt hafðist Hitler að
en nefndi þó sitt níðingsbragð nasjónalsósíalisma
Já enginn skyldi trúa þvíu sem á ytra borði sést
Orðin tala að vísu vel en verki tala best
Því þeir sem frelsi þjóðar undir hælum hafa bælt
eru heimsvaldasinnar og því fær engin móti mælt.
Hjálmtýr V Heiðdal, 5.10.2008 kl. 23:21
Málum er þannig fyrir komið að við launþegar eigum ekki völ á öðru en að borga í lífeyrissjóð. Með öðrum orðum þá höfum við ekki vald yfir okkar eigin peningum. Og hvað nún - nú eigum við að fara að lána þessar eignir okkar. Fyrr skal ég hundur heita!!!!
Ef við hefðum sjálfsvald yfir okkar peningum þá er ég viss um að margir kysu að ávaxta peninga á annan hátt en i lífeyrissjóðum.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 6.10.2008 kl. 14:00
Kæri Hjálmtýr,
Ég legg til að þú stofnir fyrirtæki sem flytur inn grænar nærbuxur. Náir upp góðri veltu og borgir þér góð laun. Bara að passa að þú sért ekki skráður fyrir því. Láta langömmu þína eða litla frænda sjá um það. Síðan er bara að reka sig og fá atvinnuleysisbætur. Þú heldur að sjálfsögðu áfram að vinna og skrifar bara hærri tekjur á ömmu þína eða frænda. Er þetta ekki heiðarlegra en að láta ríkið borga 500 milljarða inn í KB banka?Góð ráð (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 21:16
Vonandi eru góð ráð ekki dýr.
Hjálmtýr V Heiðdal, 6.10.2008 kl. 21:35
Magnað kvæði!
Vésteinn Valgarðsson, 7.10.2008 kl. 03:46
Félagi Hjálmtýr,
Gladdi einnig mitt nýuppgerða hjarta er ég sá Stjána Guðlaugs í Silfrinu, gamlar minningar komu skýrt
fram í dagsljósið. Nú er betri grundvöllur fyrir þeim hugmyndum sem við stóð fyrir á sínum tíma, ef til vill
ætti maður bara að flytja til baka og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.
Baráttukveðjur frá Ástralíu
Konráð Pálmason
Konráð Pálmason (IP-tala skráð) 11.10.2008 kl. 07:55
Sæll Konráð.
Mikill er máttur Netsins - nær að tengja okkur saman yfir tíma og fjarlægðir. Þetta eru sérkennilegir tímar í heiminum og kanski sérstaklega hér á Íslandi. Gömlu hugmyndirnar sem við færðum inn í þjóðmálaumræðuna á sínum tíma þyrftu einhverja uppfærslu að mínu mati. En allt gott sem í þeim bjó er örugglega sígilt. Í því umróti sem hér er felast tækifæri til endurskoðunar. Nú verður slegist um það hvort sett verði á fullt í stóriðjuvæðingu eða að önnur lífsgildi hógværðar nái sterkri stöðu.
Hjálmtýr V Heiðdal, 11.10.2008 kl. 08:20
Sæll aftur Hjálmtýr
Já rétt er það mikill er máttur netsins. Ég hef verið að fylgjast með framvindu mála á landinu. Alveg stórfurðulegt að fólk skuli ekki vera búið að rísa upp á afturlappirnar og mótmæla, er verkalýðshreyfingin alveg dauð? Það er þó alveg með eindemum hversu ráðamenn eru heppnir, það leikur við þá lánið. Því ef þessi ósköp hefðu skeð erlendis væri ekki bara búið að hengja þá, heldur hefðu þeir verið skotnir líka. Vonandi teks ykkur að finna nýja leiðtoga þegar þessi ósköp eru gengin yfir.
Með kveðjum að sunnan
Konráð Pálmason
Konráð Pálmason (IP-tala skráð) 12.10.2008 kl. 02:19
Hengdir og skotnir og klipnir með töng...
Ég tek undir það sem þú segir, Hjálmtýr, um gamlar og góðar hugmyndir. Það þarf svo sannarlega að taka upp ýmsa þræði, þótt aðra þurfi að láta liggja kyrra -- kúnstin er að taka þá rétt upp og endurskoða ekki það sem var rétt heldur það sem var rangt.
Ég las eitt sinn kver sem Örn Ólafsson skrifaði einhvern tímann áður en ég fæddist -- Kommúnismi og kreddutrú heitir það. Nú hef ég ekki eins góðar forsendur til að meta það eða til að gera upp áttunda áratuginn eins og þeir sem voru þátttakendur í honum, en þótt ég vildi sjá það í samtímanum að fólk velti meira fyrir sér djörfum hugmyndum um þjóðfélagsbreytingar og þyrði að standa við slíkar hugmyndir, þá sakna ég ekki innanbúðardeilna, bókstafstrúar eða kreddufestu sem virðast hafa einkennt of marga í þá daga.
Vésteinn Valgarðsson, 12.10.2008 kl. 06:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.