6.10.2008 | 22:58
Vegurinn framundan
Nú eru kaflaskipti í íslensku þjóðlífi. Tilraun sem hófst fyrir einhverjum árum er lokið. Frjálshyggja með flotkrónu er ekki efst á vinsældalistanum núna. Steingrímur J, Katrín J og Ögmundur J munu koma vel út í næstu kosningum. Elton J og Tom J verða ekki í næstu afmælisveislu íslensks auðjöfurs. Enn óvissa varðandi 60 millj. króna mánaðarlaun toppanna hjá Kaupþingi. Allt gott og blessað, það eru tækifæri í umrótinu segir Jónas Kristjánsson og ég held að það sé rétt. En það er margt sem varast ber. Óli Björn Kárason blaðamaður lýsti því í Kastljósi að nú ætti að fara á fullt í stóriðjuframkvæmdir, afnema lög um umhverfismat og auka á náttúrufórnirnar. Í Silfri Egils boðaði Pétur Blöndal brunaútsölu á flestum náttúrgæðum Íslands. Þessir menn vilja komast strax aftur á fyllerí, án umhugsunar. Þeir hafa ekkert lært og öllu gleymt. Vegurinn framundan er með blindhæð og beygju líkt og myndin sýnir, og útlitið fremur dökkt. Útrásarvíkingarnir kasta nú mæðinni og læra örugglega sína lexíu. En stóriðjuglóparnir reyna að sæta lagi og keyra allt í botn yfir blindhæðina.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 7.10.2008 kl. 08:21 | Facebook
Athugasemdir
Hreiðar Már var með að meðaltali 62 milljónir á mánuði árið 2007 miðað við skattaúttekt fjölmiðla fyrir 2 mánuðum. Sigurður Einarsson litlu minna.
Og Óli Björn boðaði ekki bara virkjanir og stóriðjuframkvæmdir - hann vill láta fella lög um mat á umhverfisáhrifum úr gildi!
Lára Hanna Einarsdóttir, 6.10.2008 kl. 23:29
Steingrímur og Katrín hafa varið íslensku krónuna í drep.
Kannski eru álver ekki ráðið, en það verður að hafa hraðar hendur varðandi verðmætasköpun í þessu landi.
Egill (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 23:41
Hugmyndir Óla Björns eru fáránlegar vægast sagt. En svo bætist það við þessa vitleysu hans að þetta er ekki framkvæmanlegt m.a. vegna EES samningsins. En hann er örugglega ekki sá eini sem hugsar á þessum nótum. Ég er búinn að hækka launin í bloggfærslunni til samræmis við þínar upplýsingar Lára Hanna. Þessi stjarnfræðilegu laun eru svo langt frá manni - 20 millur var það hæsta sem ég mundi eftir.
Varðandi krónuna þá hefur mér alltaf liðið asnalega með gjaldeyri sem hefur alltaf verið meðhöndlaður eins og holdsveikisjúklingur hjá öðrum þjóðum. Var ekki löngu kominn tími á hana? Og nú er neglan úr.
Hjálmtýr V Heiðdal, 7.10.2008 kl. 08:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.