Arkitektinn, byggingameistarinn, slökkviliðsstjórinn og flokkurinn hans

Davíð OddssonDavíð Oddsson lék tveimur skjöldum í Kastljósinu. Sá Davíð sem fólkið fellur kannski fyrir var slökkviliðsstjórinn og bjargvætturinn Davíð. Maðurinn sem með faglegum handahreyfingum lýsti því hvernig hann hefði komið í veg fyrir að íslenskur almenningur þyrfti að borga erlendar skuldir óreiðumanna. Davíð lýsti forsvarsmönnum og eigendum banka og fjárfestingafyrirtækja sem brennuvörgum, sem að lokum gengu svo langt að öll þjóðin sat í brennandi kofanum. Þá kom slökkviliðsstjórinn Davíð og forðaði hruni eins og hann lýsir því sjálfur. En hver kom þessu öllu af stað? Hver lagði hinn pólitíska grunn sem allt ævintýri byggðist á? Og hver var forsætisráðherra í fjölda ára á þeim tíma sem spilaborgin var hlaðin upp. Ef haldið er áfram með líkingamálið þá má segja að hann hafi verið arkitekt og byggingameistari húss þar sem brunavörnum var áfátt og burðarvirki gallað.  Og hann lagði niður Þjóðhagsstofnun (byggingaeftirlitið?). Í Kastljósinu sagðist Davíð hafa margsinnis varað við því hvert stefndi. Við hvern talaði hann? Arftaka sinn og „húsráðanda“ Geir Haarde? Samverkamann og flokksbróður sinn til fjölda ára, fjármálaráðherrann Árna Mathiesen? Hver hlustaði ekki á varnaðarorð Davíðs? Er hann að segja okkur að þessir menn séu ekki starfi sínu vaxnir?

Nú er rætt um að menn skuli ekki eltast við sökudólga að sinni, nú eigi allir að standa saman. En Davíð fer ekki eftir þessu. Í Kastljósi var hann með yfirlýsingar um ýmsa menn, n.k. sakbendingu líkt og tíðkast í sakamálaþáttum sjónvarps. Ef marka má viðbrögð manna eftir Kastljósviðtalið þá virðist sem Davíð hafi tekist að fá fjölda fólks til að gleyma hans hlut í atburðarrásinni. Snilld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hér í vinnunni minni (þar sem flestir eru vinstri-sinnaðir) virðast næstum allir hafa gleypt við dabba bjargvætti. gaman að segja frá því...

hryssa (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 11:21

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Það gleymdist reyndar að spyrja manninn margra spurninga.

Hver hvatti landsmenn til að kaupa bréf í De Code. Hver beitti sér fyrir lagasetningu um 20 milljarða ríkisábyrgð vegna þess fyrirtækis? Sú ríksábyrgð varð sem betur fór aldrei virk vegna inngrips á regluverki EES. Hver hrósaði á hástert á Viðskiptaþingi tvívegis þeim glæsilega árangri íslenskra útrásarfyrirtækja sem vekti svo mikla aðdáun útlendinga og undrun?

Og svo ótal,ótal margt annað gleymdist. 

Árni Gunnarsson, 8.10.2008 kl. 12:33

3 Smámynd: Kjartan Pétur Sigurðsson

Málið er líklega mun alvarlegra en margir gera sér í raun grein fyrir. Það má leiða sterkar líkur að því að þetta upphlaup hjá Davíð með Glitni banka hafi komið þessari risaskriðu af stað sem við erum núna að verða vitni að um alla Evrópu!

Kjartan Pétur Sigurðsson, 8.10.2008 kl. 13:33

4 Smámynd: Steinþór Ásgeirsson

Það er verst í þessu að hið margsannaða Kapp er best með forsjá var ekki haft að leiðarljósi í byrjun síðustu viku.

Það sést best á því að tilboð sem Glitnis mönnum var gert að samþykkja, skilst mér, var munnlegt lengi vel framan af. Ekkert á pappír engar undirskriftir. Um leið og þessar aðgerðir voru opinberar hófst hin eiginlega aftaka Íslensk fjármála umhverfis. 

Bara mín skoðun, en hvað veit ég svosum

Steinþór Ásgeirsson, 8.10.2008 kl. 15:20

5 identicon

Ég sá einmitt þann part af sjónvarpsviðtalinu þar sem hann var að tala um að allir væru vondir við slökkviliðið fyrir að ráðast á eldinn. Mér varð á að hugsa að við þyrftum allra síðast á að halda slökkviliði sem kynni ekki betur til verka en að ráðast á eldinn með því að gusa yfir hann olíu.

Ósk (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 17:10

6 Smámynd: Jóhann Pétur Pétursson

Það að segja að stærsta fjármálakreppa síðari tíma og sennilega allra tíma er gríðarleg einföldun. Ég er alls ekki að segja að einhver sé heilagur í þessu sambandi. Ég ver hvorki ráðherra, bankastjóra, flokka eða nokkurn yfir höfuð. Ég tel aftur á móti að þessir ágætu herrar skuldi okkur skýringar þegar fram í sækir. Jafnvel þurfi einhverjir að segja af sér. Mjög sennilega á Davíð einhvern þátt í því hvernig er fyrir okkur komið, bæði sem forsætisráðherra og Seðlabankastjóri. En ef Davíð er sekur þá hlýtur fyrrverandi ríkisstjórn að vera jafnsek og núverandi starfsfélagar Davíð hljóta líka að eiga sinn skerf. En að benda aðeins á einn mann er gríðarleg einföldun, það er allt sem að ég vill segja.

Jóhann Pétur Pétursson, 8.10.2008 kl. 17:25

7 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Jóhann, ég er ekki að benda á „aðeins einn mann“. Ég er að fjalla um mann sem kemur fram fyrir alþjóð á augnabliki þegar stór hluti þjóðarinnar horfir uppá eigur sínar brenna upp. Svo þykist hann vera í slökkviliðinu. Maðurinn sem hlóð bálkostinn og virðist nú stjórna fýsibelgnum svo allt brenni niður. Það verður auðvitað að fjalla um Halldór Ásgrímsson og fleiri. En það er Davíð sem kom með útspilið í gær og fullt af fólki taldi sig sjá loksins í gegnum þokuna - án þess að fatta að hér var bara verið að bulla og blekkja.

Hjálmtýr V Heiðdal, 8.10.2008 kl. 17:33

8 identicon

Var það ekki Davíð Oddson Utanríkisráðherra sem að var að hæla sér og landinu fyrir Útrásarvíkingana 2006 ?

Var það ekki Davíð Oddsson forsætisráðherra sem var að hæla sér og landinu  fyrir  Útrasarvíkinganna 2004 og 2005.

Var það ekki Davíð Oddson sem beitti sér breytingum á eftirlaunafrumvarpinu sem gera það að verkum að  hann og Halldór Ásgrímson fá ævintýrarlegar upphæðir í eftirlaun ( talað var um að greiðslur til þeirra væru 300 milljónir)

Var það ekki Davíð Oddson sem lét hækka laun til seðlabankastjóra um 25 % þegar að hann tók við því embætti.

Er Davíð Oddson ekki orðinn hættulega nálægt því að vera með ofurlaun? 

Mér finnst gleymast í allri þessari herför gegn útrásarvíkingum hversu mikið þeir hafa gert .  Fjölgað störfum lagt til góðgerðarmála, lista , íþrótta og fleira og fleira.

Víst hafa þeir gert mistök en trúir fólk því virkilega að þessir menn séu að gera þetta viljandi?

Trúir fólk þá að Seðlabanki 'Islands hafi viljandi sleppt því að búa til bakland fyrir fjármálaiðnaðinn , sem stjórnmálamenn hældu sér yfir  

sæmundur (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 23:00

9 Smámynd: Vésteinn Valgarðsson

Davíð hældi sér nú fyrir útrásina síðast í sumar.

Vésteinn Valgarðsson, 9.10.2008 kl. 02:07

10 Smámynd: Þorsteinn Egilson

Ég er að hugsa um að fá lánuð tvö orðtæki frá Agnesi vinkonu minni: Maðurinn er stórslys. Þessi maður er regin hneyksli

Þorsteinn Egilson, 9.10.2008 kl. 09:06

11 Smámynd: Elías Davíðsson

Rétt væri við núverandi aðstæður að skrá með kerfisbundnum hætti aðkomu Davíðs (og annarra) að einkavæðingu bankanna og annarra þátta, sem leiddu til núverandi ástands.  Þannig fengist hlutlægari mynd af því sem gerðist og ábyrgð einstakra manna.

Enn eitt:  Gleymið ekki að Davíð Oddsson hafi einnig gerst sekur um stuðning við stríðsglæpi, þegar hann og Halldór Ásgrímsson samþykktu áætlun á NATO-fundi í Washington 23. apríl 1999, um að heimila loftárásir á fjölmiðla í Serbíu. Eru grunur um fjármálamistök meiri ástæða til að krefjast afsagnar Davíðs en hvatning til morðs?

Elías Davíðsson, 11.10.2008 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband