Hve lengi - hve mikið?

Bubbi kóngurÞað er ljóst að með framkomu sinni í Kastljósi tókst Davíð Oddssyni að blekkja stóran hlut þjóðarinnar. Ég hef haft spurnir af ýmsum vinnustöðum þar sem fólk lýsti því yfir að loksins hafi einhver talað mannamál um ástandið. Sumir sögðu að nú væru þeir rólegri, gamli landsföðurinn hafði talað kjark í þá. En það var skammgóður vermir, orð seðlabankastjórans höfðu strax áhrif til hins verra. Ráðherrar og aðrir starfsmenn ríkisins sem réru lífróður til að bjarga málum fengu yfir sig nýjan brotsjó þegar breskir ráðamenn heyrðu orð Davíðs. Senusigur Davíðs var því enn eitt áfallið fyrir þjóðina. Hér talaði ekki seðlabankastjóri, heldur pólitískur refur sem reyndi að fría sig af allri ábyrgð á ástandinu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Davíð uppnefnir menn til hægri og vinstri. Alla hans tíð í stjórnmálum hefur hann talað niður til fólks og hreytt ónotum í andstæðinga sína í stjórnmálum. Hve lengi á hann að sitja í núverandi valdastöðu - augljóslega vanhæfur til að gegna henni?  Og hve mikið þarf tjónið af aðgerðum og aðgerðaleysi Seðlabankans undir hans stjórn að vera áður en einhver hefur kjark til þess að segja hingað og ekki lengra.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Atli Hermannsson.

"Það er ljóst að með framkomu sinni í Kastljósi tókst Davíð Oddssyni að blekkja stóran hlut þjóðarinnar"

Þetta er sorgleg staðreynd og sýnir betur en nokkuð annað hversu baneitraður maðurinn er. 

Atli Hermannsson., 9.10.2008 kl. 10:47

2 identicon

Bíddu ég veit ekki betur en að ráðamenn breta hafi sagt að þeir hefðu þessar upplýsingar eftir samtöl við íslenska kollega sína.  Davíð talaði ekkert um innstæður ICESAVE reikninganna.

Í hverju felst blekkingin?

Fyrst er kvartað yfir því að Davíð segi ekkert og tjái sig ekki þrátt fyrir óskir um það og svo þegar maðurinn kemur og skýrir frá ástæðum og tilgangi aðgerðanna undanfarið verður allt vitlaust og honum kennt um ófarir þjóðarinnar.

Mér fannst mjög gott að heyra hann segja frá því að íslenskir skattgreiðendur ættu ekki að gangast í ábyrgðir fyrir erlendum lánum óreiðumannanna.   Hefði verið betra að láta í veðri vaka að við ætluðum að standa við allar skuldbindingar bankanna erlendis vitandi vits að við þær gætum við aldrei staðið?  Það hefði verið blekking.  Ólíkt öllum öðrum sem hafa tjáð sig um þessi mál hefur Davíð a.m.k. gert tilraun til að útskýra fyrir okkur hvernig málin munu þróast. 

Ég get hinsvegar tekið undir það að Davíð Oddsson ber sína ábyrgð á þeirri þjóðfélagsmynd sem við höfum búið við undanfarin 10-15 ár en hann er fráleitt einn um þá ábyrgð.

Ég hvet þig til að hlusta aftur á viðtalið við Davíð.

Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 12:43

3 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Davíð var ekki að tala um einstaka reikninga - hann var með mikilli handahreyfingu að sópa erlendum skuldum út af borðinu. Það þurfti ekki táknmálstúlk til að skilja hann. Það hefur ekki komið fram hvað Árni sagði sem Darling misskildi. En yfirýsing Davíðs var afdráttarlaus. Ég hef ekki kvartað yfir því að Davíð segi ekkert - ég haf alltaf talið hans orð fremur til tjóns en hitt. Það er auðvitað ekki svo að það sé hægt að hengja allt á Davíð líkt og gert var við sovéska hershöfðingja áður. Hann er í teymi sem hefur unnið okkur mikið ógagn. Orðið óreiðumaður er honum tamt. En þá er hann að reyna að koma skítnum á þá sem áður voru lofsungnir. En hann á góðan hlut í fjóshaugnum sem nú þarf að moka. Útskýringar Davíðs „á því hvernig málin munu þróast“ eins og þú skrifar eru einski virði. Það er enginn í þeirri stöðu nú að útskýra hvert stefnir. Það veit enginn akkúrat núna. Ég stend við það sem ég skrifaði: hann var að blekkja og fría sig ábyrgð. Það var stjórnmálamaðurinn en ekki embætismaðurinn sem var í Kastljósi.

Hjálmtýr V Heiðdal, 9.10.2008 kl. 17:39

4 identicon

Ég held við ættum að reyna að setja okkur í spor þeirra manna sem mest á mæðir þessa dagana.  Staða ráðherra og embættismannanna er ekki öfundsverð og störf þeirra verðskulda ekki það skítkast sem dunið hefur á þeim akkúrat núna.  Þeir eru að hreinsa til eftir eitthvert mesta fyllerí sem haldið hefur verið í sögunni.  Og vegna þess hversu margir hafa gripið til líkingamálsins þá má líkja þessu við það að þú byðir mér til veislu þar sem ég kynni mér ekki magamál í mat og drykk, æti á mig gat og yrði ofurölvi, þá gæti ég ekki kennt þér um hvernig fór fyrir mér  - eða hvað?

Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 21:08

5 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Það er rétt, enginn öfundsverður sem stendur í þessari orrahríð. Þegar versta hríðin er gengin yfir og hreingerningin hafin þá er rétt að skoða partýið og kanna hvaða mjöður það var sem gestir dreyptu á. Hver bruggaði og hver bauð í partýið.

Hjálmtýr V Heiðdal, 9.10.2008 kl. 21:33

6 Smámynd: Björn Heiðdal

Þetta er nú ekkert voða flókið Týri minn.  EES heitir sú vitleysa sem gerði Íslendingum kleift að gera sig breiða í útlöndum.  Davíð Oddsson og Jón Baldvin eru höfuðpaurarnir í þessu svínaríi fyrst þú endilega vilt kafa almennilega ofan í þetta.  Davíð ber síðan fulla ábyrgð að hafa ekki reynt að stöðva þetta ævintýri.  En hann er ekki einn um það heldur verður fjósaflokkurinn að axla sína ábyrgð og líka laumukommarnir í Samfylkingunni.  Þar sem nánast hver einn og einasti hafa lýst því yfir bankarnir á hausnum hafi verið að mala gull.  Virði þeirra margfaldast á stuttum tíma.  Allt vegna þess að þarna voru svo vandaðir og klárir menn að stjórna.

Gott dæmi um Alþingismenn sem hafa ekki haldið vatni yfir snilligáfu bankastrákanna okkar eru Árni Páll í Samf. og Bjarni Ben í Sjálfhælnisflokknum.  Síðan má ekki gleyma Ágústi Ólafi varaformanni með meiru.  Hann er nú ekkert smá búinn að vera tala um allan virðisaukan sem þessir bankar hafa fært okkur.  Þetta eru bara vanhæfir bjálfar allir með tölu.  Bankarnir hafa gert miklu meira ógagn en gagn.  Þeir hafa sogað til sín allt hæfasta og klárasta fólkið úr háskólum landsins til að búa til núll og fleiri núll.  Það fást varla lengur jarðfræðingar til að vinna nauðsynlegustu verkefni.  Opinberar stofnanir og einkafyrirtæki sem ekki starfa í bankageiranum hafa þurft að reiða sig á hæfileika pólskra skúringakvenna og innfluttra strippara með háskólagráður til að halda þjóðfélaginu gangandi.

Síðan er stóri brandarinn í þessu öllu saman að Jón Ásgeir og þessi með skrítna nafnið hafa nóg af peningum.  Þeir gætu alveg reddað þessum bönkun sínum ef áhugi væri fyrir hendi.  Síðan að lokum legg ég til að við hengjum Bjarna Ármansson  (upp á snúru). 

Björn Heiðdal, 10.10.2008 kl. 00:35

7 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæll Björn frændi

Hvar er hinn gullni meðalvegur? Hvaða kerfi getum við notast við? Bankastjóri (fyrrv.) Landsbankans (fyrrv.) sagði í Kastljósi að sjálfur kapitalisminn væri til umræðu. Ekki heyrði ég hann boða sósíalisma. EES er samningur sem miðar að eflingu kapitalsins með velferðarívafi.

Hvert skal stefna?

Kveðja

Frændi

Hjálmtýr V Heiðdal, 11.10.2008 kl. 08:25

8 Smámynd: Björn Heiðdal

Það eru margir sem vilja Fasisma eða samkrull einræðis og ríkiskapitalista.  Búmm, hryðjuverkaáras og í kjölfarið neyðarlög sem gefa ríkinu leyfi til eignaupptöku og afnámi venjulegra mannréttinda.  Búmm, bankakerfið hrinur óvart.  Völd færast á æ færri hendur og ríki sem fara á hausin komast í eigu erlendra auðhringja fyrir lítið.  Finnst þér það ekki skrítið að menn eru í alvöru að tala um að Ísland sé gjaldþrota þegar einkafyrirtæki í einstaklings eigu fer á hausin.  Hvaða bull er þetta eiginlega.  Á ekki bara að senda reikninginn á Björgólf, Hannes, Jón og alla hina álfana. 

Nei, auðvitað verður það ekki gert því það er hægt að mjólka þjóðríki miklu betur og lengur.  J.P. Morgan og félagar, sem eru í þessum skrifuðu orðum að ráðleggja Dabba að kúka upp á bak og keyra þjóðina í kaf, sjá hag sinum miklu betur borgið með alla íslensku þjóðina í vasanum.  Þeir geta þá gert kröfu um það hvernig við kjósum í Öryggisráðinu og hvaða fyrirtækjum við leyfum að kaupa virkjanir og vatnsréttindi fyrir slikk og smá erlendan gjaldeyri.

http://vald.org/falid_vald/kafli09.htm 

Björn Heiðdal, 11.10.2008 kl. 09:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband