9.10.2008 | 12:41
Lágkúra
Jónas Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri hefur skoðanir á mönnum og málefnum. Oft eru kjarnyrt skrif hans gott innlegg í þjóðmálaumræðuna - en stundum fer hann yfir strikið. Skrif sem hann birti 8. okt. um Björgólf Guðmundsson eru með því ósmekklegasta sem ég hef séð á netinu - og er ekki allt fagurt sem þar flýtur um. Svona lýsir Jónas Björgólfsfeðgum undir fyrirsögninni Bjöggar flúnir af velli: Um árabil hafa þeir gert sig breiða í samfélaginu. Þóttust vera guðir og galdramenn. Faðirinn spásseraði um í skrítnum búningi, sem minnti á melludólg í Berlín fyrir 75 árum. Þessi árás á persónu Björgólfs eldri er í raun lýsing á innræti höfundarins. Lágkúra.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þið eigið erfitt að sætta ykkur við realismann, vinstrimenn. Mér fannst alltaf múnderingin minna á Al Capone. Innrætið mitt hlýtur þá líka að vera rotið - en hvað með samvisku þína?
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 9.10.2008 kl. 12:50
Sæll Vilhjálmur
Þú ert ekki vel að þér í klæðaburði Al Capone. En hvaða realisma ert þú að tala um? Þinn?
Hjálmtýr V Heiðdal, 9.10.2008 kl. 13:07
Ég sá þennan bút í blaðinu í dag og fannst þetta ósmekklegt. Skiptir ekki máli hver tílvísunin er.
Lísa Margrét Kristjánsdóttir (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 15:41
Með eindæmum ósmekklegt. Jaðra svona ummæli ekki við mannfyrirlitningu?
Guðný Helga Árnadóttir (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 16:51
Sælir.
Sagan um hvernig Björgólfarnir eignuðust fjárfestingar og eigur Ingimars Ingimarssonar í Rússlandi minna nú á aðferðir Al Capone
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 9.10.2008 kl. 17:09
Ekki þekki ég þessa sögu sem þú imprar á. Láttu flakka.
Hjálmtýr V Heiðdal, 9.10.2008 kl. 17:13
Þetta var nú fyrir mörgum árum á netinu, en best væri að fá konkret upplýsingar ef á að setja þetta á bloggið, minnimst þess að Björgólfur á kjölfestuhlutann í Morgunblaðinu og þar með þessa síðu hér ! . Ingimar er eigandi JetX flugfélagsins sem er með skrifstofur í Kópavoginum.
Predikarinn - Cacoethes scribendi , 9.10.2008 kl. 17:28
Vissulega óþarfi að taka menn á teppið fyrir smekk þeirra á fötum en engu að síður ágætt hjá Jónasi að benda á hvað hefur orðið um þessa feðga !? Forsvarsmenn Glitnis komu fram í dagsljósið og eins Kaupþingsmenn en Björgólfarnir hafa ekki hingað til séð neina ástæðu til að koma fram með tilkynningu, viðtal eða annað slíkt fyrir hluthafana sem margir hverjir tapa miklu eða ávarpa starfsfólk sitt eða yfirhöfuð hafa skoðun á þessari hörmung sem Ísland er að ganga gegnum um. Þessir forkólfar íslenskt athafnalífs þegja þunnu hljóði.
Hvert fóru þeir og hvernig stendur á því að fólki finnst það ekki undarlegt að þessir menn sem hafa ekki verið feimnir hingað til við myndavélina forðast hana núna og eru jafnvel flúnir land. Ætlil þeir séu með slæma samvisku fyrst þeir eru horfnir ?
Dísa (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 19:51
Ágæta fólk, skiptir virkilega máli að þessi ummæli hafi verið ósmekkleg ? Íslenskir fjárglæframenn hafa skuldsett sína þjóð í botn undir engu eftirliti stjórnvalda þ.a. allt hefur eiginlega klikkað. Framundan eru gríðarlegir efnahagslegir erfiðleikar. En þá er fundið ummæli sem eru ósmekkleg.
Já, svona er þetta alltaf. Við erum snillingar í því að karpa um smáatriði. Sjá ekki stóru myndina.
Gísli (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 22:28
Mér finnst Þessir feðgar ekkert þurfa að trana sér fram nú - hafa sennilega nóg að gera að bjarga því sem bjargað verður af starfsemi sem enn er á þeirra vegum. Klæðnaður þeirra er algjört einkamál Spyr enginn um Jón Ásgeir ásamt liðsmönnum- og hvernig þeir mjólkuðu Glitni (á Íslandi) í síðasta mánuði án þess að leggja fram neinar tryggingar?
H G, 10.10.2008 kl. 00:50
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item230630/
GD (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 10:19
Þjóðnýtum Bónus.
Björn Heiðdal, 11.10.2008 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.