Syndir feðranna - veganesti Framsóknar

SDGSigmundur Davíð segir að féð sem skuldarar eiga að fá til baka skuli taka frá eigendum föllnu bankanna sem sköpuðu forsendubrestinn. 
Þá er kannski tímabært að spyrja hvernig þessir bankar komust í hendur manna sem tókst á fimm árum að kollsigla efnahagslífi þjóðarinnar. 
Flokkur Sigmundar Davíðs er með sömu kennitölu og flokkur mannanna sem sköpuðu aðstæður forsendubrestsins með því að gefa bankana í hendur bankstera. 
Syndir feðranna nú eru aðal tromp flokksins og leið til valda.
Margt er skrýtið í henni veröld.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marteinn Sigurþór Arilíusson

Þú verður að fara að sætta þig við það Hjálmtýr að samfylkingin er orðin að örflokki.Allt vegna svika við heimili landsins.

Marteinn Sigurþór Arilíusson, 11.4.2013 kl. 08:36

2 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það er vissulega þung byrgði að bera, syndir feðranna. En eigin syndir eru þó erfiðaru burðar og það kemur nú í hlut stjórnarflokkanna, enda eru þeir að kikna undan þeim.

Gunnar Heiðarsson, 11.4.2013 kl. 08:47

3 Smámynd: Björn Heiðdal

Ætlaði Jóhanna ekki að láta rannsaka þessa sölu.  Nógu oft nefndi hún það nú.  Af hverju gerði hún ekkert í því??  Þurfti hún að fá leyfi hjá DAVÍÐ

Björn Heiðdal, 11.4.2013 kl. 09:11

4 identicon

Vitundarvakning

Við þurfum að fá ungafólkið til að lesa sér til um peningakerfið.

Ámeðan við lesum okkur ekki til erum við fastir í gömlu hugsuninni.

Vitundarvakning.

Þú kaupir fyrirtæki til að fá eignir, ekki til að setja eignir inn í fyrirtækið.

Kaupir á 10 kr fyrir lánsfé. fyrirtækið tekur skuldina yfir, og þú tekur 20 kr út úr fyrirtækinu.

Ég hef verið að safna slóðum á netinu til að reyna að skilja þetta.

Lesa og læra, vitundarvakning, þá losnum við við tjóðrið sem heldur okkur á þekkingarleysis básnum.

Þið, ungu menn eigið að leysa okkur af básnum, með þekkingunni ykkar.

www.herad.is

http://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/

Eg. 11.04.2013 jg

Jónas Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 11.4.2013 kl. 17:01

5 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Ég legg til að við förum fram á rannsókn á sölu bankanna á sínum tíma, og sölu bankanna í tíð núverandi ríkisstjórnar. Rannsókn á Sjóvámálinu má gjarnan fylgja með.

Svo skulum við óska eftir opinberri rannsókn á afgreiðslu á Svavarssamningum. Sú rannsókn gæti auðveldlega leitt til þess að a.m.k. Steingrímur og Jóhanna yrðu dregin fyrir landsdóm. Skítseyðin sem studdu ríkisstjórnina rifjast þá fram eins og aularnir sem skrifuðu undir yfirlýsingu á Húsavík á sínum tíma og biðjast afsökunar á aulaskapnum. 

Sigurður Þorsteinsson, 11.4.2013 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband