Færri á vellinum

6. des.

Það var við því að  búast að eitthvað fækkaði í röðum mótmælenda á Austurvelli.

Eftir stöðugan vöxt  sem loks náði um 10 þúsund þá tók að fækka 29. nóvember og enn fækkaði þátttakendum  í dag. Þetta er mjög eðlileg þróun og þýðir ekki að afstaða almennings hafi  breyst. Margir sjá ekki ástæðu til þess að mæta laugardag eftir laugardag til aðhlusta á misgóðar ræður í misgóðu veðri. Það verður að segjast eins og er að ræða  trukkabílstjórans í dag var ekki sköruleg og upplífgandi. Það er ekki öllum gefið að flytja góðar ræður.

Það sem gerist óhjákvæmilega  þegar svona óskipulögð hreyfing á í hlut að hún gengur í gegnum mismunandi tímabil.  Í upphafi voru fáir. Svo fjölgaði og nú fækkar.

En það eru margir  sem sjá ekki ástæðu til þess að mæta núna - það kemur upp viss þreyta hjá hluta fólksins. En menn hafa ekki skipt um skoðun. Krafan um kosningar sem fyrst og brottreksturs liðsins í Seðlabankanum stendur.

 

 


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Sammála. Það jákvæða er þó að fólk er vaknað af dvala, og meðvitaðara um kraftinn sem felst í samstöðu mótmælum. Sá kraftur mun svo sannarlega losna aftur úr læðing þegar raunveruleikinn blasir við fljótlega eftir áramót

hilmar jónsson, 6.12.2008 kl. 23:26

2 Smámynd: Björn Heiðdal

Verð að birta þetta bréf með góðfúslegu leyfi forsea.

 Hæ Hæ

                             Neyðarhróp á hjálp  

Ég var að senda þennan pistil í Fréttablaðið, þar sem ég vil fá að koma því á framfæri að ég ákalla Íslensku þjóðina til að standa saman og styrkja okkur öryrkjana sem búa erlendis.

'Eg vona að hann verði  birtur og Íslenska þjóðin standi myndarlega saman og styrki okkur og sýni okkur að þeir hafi ekki snúið við okkur baki og vilji og geta styrkt okkur svo við getum átt jólagleði eins og aðrir.

Mér finnst það bara skylda íslensk samfélags að styrkja okkur vegna gengisástandsins þá fáum við svo litla peninga og líðum fyrir það, sem við eigum alls ekki skilið.

Ég vona að þetta verði birt og íslenska þjóðin standi saman og syðji okkur myndarlega, því oft var þörf en nú er nausyn.

Hafið það sem best í kvöld, vonum það besta.

Kv Gleymmerei og Emma.

Sæl/l

       Mig langar að setja smávegis frétt í blaðið, sem mig langar að kalla
                                Neyðarhróp á hjálp
      Ég heiti Brynja Dögg Ívarsdóttir  og bý á Spáni.
      Ég er öryrki og neyðist til að ákalla þjóðina til þess að standa saman og aðstoða öryrkja,
      sérstaklega þá sem búa erlendis og finna svo sannarlega fyrir ástandinu á gjaldeyrismarkaði.
      Stjórnvöld gera ekkert fyrir öryrkja sem búa erlendis og öryrkjarnir líða fyrir það.
      Þetta er ekki réttlátt, að þó að við séum öryrkjar þá eigum við ekkert að líða fyrir svona.
      Efnahagsástandið er ekki okkur að kenna.
      Ég varð að flytja til Spánar vegna þess að þar er lægri húsaleiga en heima og einnig er
      margt hér ódýrara.
     
      Ég sjálf hef enga peninga eftir að hafa greitt húsaleigu, þess vegna sendi ég þetta hróp á hjálp,
      til þess að geta þá kannski átt jól eins og aðrir.
      Ég verð að borða eins og aðrir, þó að það sé ekki dýr matur þá kostar hann samt
      Það er ekki gaman að geta ekki veitt sér neitt, þegar aðrir halda jól, þá verður ekkert á mínu borði.
      Ekkert. Ég sé fram á það að þurfa hreinlega að svelta um jólin, ef engin hjálpar mér, mér finnst það sárt,
      að hugsa til þess en þannig er það bara.
      Ég veit um marga sem eru á Morgunblaðsblogginu sem eru í sömu vandræðum og ég,
      hafa enga peninga.
     
       Vil ég af því tilefni benda á bloggsíðu mína, gleymmerei.blog.is
       Þar eru upplýsingar um hvert er hægt að snúa sér ef einhver sér sér fært að aðstoða mig
       og aðra bloggara,
       Sérstaklega veit ég um nokkra sem búa í Danmörku sem eru í miklum vandræðum.
         Kæra þjóð, kæru Íslendingar, við öryrkjar sem búum erlendis, við eigum sama rétt og aðrir
         til að halda jól.
        Sýnið okkur það, með því að styrkja okkur svo okkar jóla"gleði" verði ekki grátur og gnýstran tanna.
        Oft hefur Íslenska þjóðin sýnt samstöðu, og náð að safna miklum fjármunum.
        Margt smátt gerir eitt stórt, takið nú fram veskin og sýnið jólagleðina og náungakærleikann og
        styðjið okkur.
        Sýnið að við skiptum líka máli og að Íslenska þjóðin hafi ekki snúið við okkur bakinu.
        Standið saman og styðjið okkur.
        Með kveðju Brynja Dögg Ívarsdóttir
        Á Spáni.
        Sími 0034 617062753     
        gleymmerei.blog.is

Björn Heiðdal, 7.12.2008 kl. 01:34

3 Smámynd: Björn Heiðdal

Þeir sem vilja styrkja þennan öryrkja eða aðra sem búa í Danaveldi geta lagt vænar fjárhæðir inn á minn reikning.  Ég mun síðan deila fjármununum út eftir nauðsyn og áhuga.

512 26 00007.  Tek ekki við frjálsum framlögum fyrir minna en 37.250 krónur eða 300 evrur.  Ekki er hægt að borga í blíðu bara fríðu! 

Björn Heiðdal, 7.12.2008 kl. 01:39

4 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Sjálfsagt er að láta kjörna ráðamenn þjóðarinnar vita að landsmenn eru ekki ánægðir með hvernig komið er og jafnvel kenni þeim að meira eða minna leyti um það.

En fyrst og fremst þarf að halda þeim við efnið að þeir leysi úr málunum og þrífi upp eftir sig. Eitt það versta sem fyrir gæti komið núna að landið væri stjórnlaust þær vikur eða þá mánuði sem færu í kosningauppstillingu og kosningar. Þjóðstjórn, segja sumir, en hver eða hverjir eiga að velja í hana? Hve lengi væri hún að komast til botns í málunum og byrja að stjórna? Forláttu mér Gorgeir þó ég sjái ekki að þessi afsagnarkrafa sé hugsuð til enda.

Sigurður Hreiðar, 7.12.2008 kl. 11:06

5 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæll Sigurður

Það eru margar raddir í stórum kór. Ég tel að það eigi að kjósa í sumarbyrjun. Gefa öllum tíma til að gera sig klára, Sjálfstæðis- og Framsókn búnir að gera upp sín mál og til í ESB viðræður. Um það leiti eru VG komnir með Evrópustefnu sem leyfir aðildarviðræður.

Afsögn núna er ekki raunhæf - en mikið væri það gott að verða vitni að meiri auðmýkt hjá ráðamönnunum. Geir gæti skorað punkta með því að lýsa sinni ábyrgð og fallast á kosningar. Davíð gæti byrjað að halda sér saman og viðurkenna einhver af þeim mistökum sem hann sannanlega átti þátt í. Þetta eru ekki óskeikulir menn - ekki frekar en ég og þú. Ingibjörg Sólrún ætti að lýsa því yfir að hennar fólk hafi ekki skilið ástand efnahagsmála þegar þau fóru í stjórn. Hún sagði ekki fyrir svo löngu að það væri ekki komin kreppa.

Þjóðstjórn yrði ekkert nema óþarfur millileikur.

Hjálmtýr V Heiðdal, 7.12.2008 kl. 11:35

6 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Tel mig skilja þau sjónarmið sem þú styður, Hjálmtýr. En ég er ekki sammála þeim. Mér finnst að þeir sem leitt hafa lýðinn inn á ballið séu líklegastir til að rata leiðina út til baka og fara þar líka fremstir í flokki.

Svo má kjósa, þegar aftur er komið út á hlað.

Sigurður Hreiðar, 7.12.2008 kl. 12:45

7 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Skil þig ekki alveg. Hverju ert þú ekki sammála af því sem ég skrifa? Þú virðist telja að forystan sé að leiða okkur út á hlað.

Ég er ekki svo viss um að þau geti það. Og á hlaðinu er örugglega mykjuhaugur sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn eiga. Ég vil að hlaðið sé hreint.

Hjálmtýr V Heiðdal, 7.12.2008 kl. 13:04

8 Smámynd: Guðmundur Björn

10.000 manns??  Jæja, það er ágætt að einhver telur sig kunna að telja!

Guðmundur Björn, 7.12.2008 kl. 17:26

9 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Fólk sem er við skál í Cancún eru ekki í aðsöðu til að ræða tölur um fjölda fólks sem mætir á Austurvöll.

Hjálmtýr V Heiðdal, 7.12.2008 kl. 17:37

10 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

aðstöðu - skal það vera.

Hjálmtýr V Heiðdal, 7.12.2008 kl. 17:39

11 identicon

skritið þetta tal um kosningar, (sem mer finnst eðlilegt að verði snemma næsta vor) að Geir talar um lanið fra IMF einsog hann hafi sjalfur

personulega tekið lanið og se i abyrgð þ.e. að ef hann er ekki til að taka við aurunum komi þeir ekki (sem er kannski gott utaf fyrir sig þa borgar hann lika lanið )

Hitt er svo að engin virðist abyrgur og þa meina eg politiska abyrgð. Bankakerfi landsins hrynur og þa a að sjalfsögðu raðherra bankamala að segja af ser, mundi gerast i flestum

löndum sem við berum okkur saman við... nema a Islandi og Simbabve!

sigurður örn brynjolfsson (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 18:46

12 identicon

Þegar mótmælt hefur verið hvern laugardaginn á eftir öðrum, í svo sem tvo mánuði, er eðlilegt að mesti móðurinn renni af fólki. Þetta fer að verða gott í bili. Fráleitt er að halda fram að andófið hafi engu skilað; pólitíkin er í mikilli gerjun þessar vikurnar og þeir sem á góðæristímum þöndu prjóst og sprerrtu stél fara nú með löndum. Evrópuumræðan blómstrar sem aldrei fyrr og uppgjör á góðæristímanum stendur yfir. Vafasamt er, að draga of miklar ályktanir af fundinum í gær, þar sem fámennara var en áður. Þegar komið er fram í desember kjósa fjölskyldur einfaldlega að vera heima og baka piparkökur. Eftir nýár vaknar fólk svo af dvalanum og líklegt þykir mér að sú orka sem með þjóðinni býr verði virkjuð í kosningum í maí.

Sigurður Bogi Sævarsson (IP-tala skráð) 7.12.2008 kl. 19:35

13 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Fólk er farið að sjá í gegnum það hvernig Vg hefur hertekið þessi mótmæli. Það nennir engin að hlusta á frasa þeirra öskraða í hljóðnema á Austurvelli í mörg skipti í röð. Engar lausnir... bara bull.

Gunnar Th. Gunnarsson, 7.12.2008 kl. 20:38

14 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

VG getur ekki eignað sér mótmælin - en þeirra fólk er samt áberandi. Hvað mættir þú á marga fundi Gunnar áður en þú gafst upp á VG?

Það er erfitt að koma með lausnir á svona samkomum. Þó eru þarna ræðumenn s.s. Þorvaldur Gylfason. Hann hefur eitthvað uppi í erminni. En ég segi enn og aftur - mér þykja alltaf skrítnar athugasemdir þeirra sem hafa meiri áhyggjur af mótmælunum sjálfum en því sem er verið að mótmæla!

Hjálmtýr V Heiðdal, 7.12.2008 kl. 21:11

15 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég hef ekki mætt á mótmælafundi, enda búsettur hinumegin á landinu. En ég hef samt reynt að fylgjast með þessu í gegnum fjölmiðla og það var nóg til þess að ég áttaði mig á því hvernig VG reynir að nýta sér ástandið sér til framdrátta, sem er í sjálfu sér alveg eðlilegt. Ef ekki nú, hvenær þá? En innihaldslausir frasar og hnefasteitingar er bara ekki mín pólitík.

Gunnar Th. Gunnarsson, 8.12.2008 kl. 02:27

16 Smámynd: Björn Heiðdal

Hjálmtýr Heiðdal heldur að Sjálfstæðisflokkurinn muni breyta nafni sínu á næsta landsfundi í Landráðaflokkurinn.  Sú galna ósk rætist sennilega ekki ef marka má mína heimildarmenn.  Samt er skemmtilegt að sjá ESB sinna (lesist Samfylkingarfólk og fyrrverandi IMF starfsmenn) hlakka yfir skipulögðum bankamannaglæpum með ríkisábyrgð.  Í þeirri von að íslenska þjóðin og X-D missi vitið af hræðslu og kjósi yfir sig ESB.

Spurning hvort Hjálmtýr sé sammála Ólafi Ágústi.  En Ólafur skammaði samstarfsflokkinn í ríkisstjórn fyrir að bíða eftir landsfundi til að ákveða hvort sækja ætti um inngöngu í Himnaríki.  Hann kallaði það ólýðræðislegt að hundsa meirilhluta vilja þjóðarinnar!  Hann vildi aðgerðir tafarlaust, ekkert hangs.  Ef þetta er ekki bull út í loftið og útúrsnúningur á hugtakinu lýðræði þá heiti ég ekki Heiðdal. 

Björn Heiðdal, 8.12.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband