7.8.2008 | 16:15
Bloggað um blogg
Nú er ég búinn að vera virkur bloggari síðan í maíbyrjun og skrifað um ýmis mál. Þeir sem hafa heimsótt mína bloggsíðu sjá að meðal minna helstu áhugamála er ástandið í Palestínu. Af 25 bloggum eru 9 um Palestínu að öllu leyti eða að hluta. Ástæða þessa áhuga er f.o.f sú skoðun mín að í raunverulegri lausn þessarar deilu felist mikill gróði fyrir heimsbyggðina og framtíðarhamingja bæði Palestínuaraba og gyðinga í Ísrael.
Sumir þeirra sem tjá sig um þetta mál á blogginu eru djúpt sokknir í fordóma gegn arabaþjóðum og Íslam. Og svo eru það menn eins og Vilhjálmur Örn í Kaupmannahöfn sem stimplar alla sem ekki syngja Ísrael lof og prís gyðingahatara. Ég hef fengið þennan stimpil hjá honum. Nú er hann búinn að loka á mínar athugasemdir á sínu bloggi. En sjálfur stekkur hann um bloggheima og tjáir sig með sínum sérstaka hætti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (103)
5.8.2008 | 10:27
Stuð hjá Staksteinum
Stundum verð ég alveg hlessa þegar ég les Staksteina Morgunblaðsins. Ég átta mig ekki alltaf á því hvort höfundurinn er að grínast eða bara svona viðutan. Í morgun er umfjöllun um frétt sem ég fann hvergi í Morgunblaðinu en sá svo í Fréttablaðinu. Fréttin er um tvær íslenskar stúlkur, ungliða úr Samfylkingunni, sem lögðu í reisu til Ísrael og Palestínu en voru handteknar á flugvellinum og haldið þar klukkutímunum saman við yfirheyrslur og rannsókn. Þetta er ekki frétt í sjálfu sér. Ég fékk að kynnast þessu sjálfur þegar ég fór um þessar slóðir. Þetta er eiginlega regla frekar en undantekning. En skoðum nú umfjöllun Staksteina í dag, 5. ágúst: Ísrael telur sig vera frjálslynt lýðræðisríki. Ísraelskum stjórnvöldum er mikið í mun að dregin sé upp slík mynd af þeim í vestrænum fjölmiðlum. Þetta á ekki sízt við þegar kemur að deilum Ísraelsmanna og Palestínumanna. Hvers vegna gera stjórnvöld í Ísrael þá þvílíka reginvitleysu og að taka íslenzka ungliða, sem ætluðu í upplýsingareisu til að kynna sér deiluna frá báðum hliðum, úr umferð við komuna til landsins, yfirheyra þá og krukka í fartölvurnar þeirra? Þetta er þarflaust, vitlaust og eingöngu til þess fallið að skapa neikvæða ímynd af Ísraelsríki hér á Íslandi.Það er einskonar umvöndunartónn hjá Staksteinum, eins og höfundurinn sé í fullri vinsemd að reyna að benda Ísraelum á það að þeir séu að gera mistök með þessu framferði. Og skemma þar með þá ímynd að Ísrael sé í raun frjálslynt lýðræðisríki . En ríki sem byggir á mismunun þegnanna eftir trú og uppruna er ekki frjálslynt lýðræðisríki Ríki sem rænir landi granna sinna, stendur fyrir skipulögðum morðum utan laga og réttar er ekki frjálslynt lýðræðisríki. Ríki sem brýtur alla alþjóðasamninga sem það kemst yfir að brjóta er ekki frjálslynt lýðræðisríki Ríki sem heldur 5 milljónum manna innilokuðum bak við múra og gaddavír án allra réttinda er ekki frjálslynt lýðræðisríki. Staksteinar telja þetta þarflaust og vitlaust og skapi neikvæða mynd af Ísraelsríki hérlendis.Spyrja má hvort enn sé til venjulegt fólk á Íslandi sem telji Ísrael til frjálslyndra lýðræðisríkja. Þeir sem styðja málstað Ísraels hér gera það á allt öðrum forsendum, þeir styðja það ýmist á trúalegum forsendum eða vegna haturs á arabaþjóðum. Þeim er skítsama um frjálslyndi og lýðræði. Ísraelsríki komst á legg m.a. vegna mikils stuðnings frá alþjóðahreyfingu jafnaðarmanna. Hinir ungu íslensku jafnaðarmenn sem Staksteinar fjalla um fá nú að kynnast því af eigin raun hversu illa var staðið að málum þegar Sameinuðu þjóðirnar samþykktu að stofna ríkið á landi annarrar þjóðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.8.2008 | 15:53
Rektorstorg
Rektor Listaháskólans hefur sagt að án torgsins fyrirhugaða fyrir framan Listaháskólabygginguna við Laugaveg muni skólinn ekki tengjast nægilega við mannlífið. Ég hef skoðað þetta torg rektorsins á myndum og mér sýnist það álíka mikið torg og stéttin fyrir framan Bónus í Kjörgarði. Að fórna tveimur fallegum húsum fyrir þetta rektorg er fáránleg hugmynd. Ég skil vel þá afstöðu að skólinn þurfi að tengjast við mannlífið og mér líst vel á að hafa hann við Laugaveg. Ég stundaði nám í forvera skólans, Myndlista- og handíðaskólanum og var einnig í listaskóla sem er staðsettur í miðborg Gautaborgar. Það var gott að vera í miðborginni og ég tel að miðborg Reykjavíkur verði betri eftir að skólinn hefur starfsemi þar. En það verður að koma honum fyrir án þess að fórna því sem einkennir miðborgina. Ég sé að í tillögum sem voru nr. 2 og 3 í samkeppninni eru gömlu húsin látin standa og það virðist vandræðalaust.
Svo vil ég benda mönnum á stórgóða grein eftir Snorra F Hilmarsson, formann Torfusamtakanna, í Morgunblaðinu þ. 28. júlí s.l.. Fyrirsögnin er Hvítur fíll með hótanir
Torgið við Kjörgarð
Húsin sem eiga að víkja fyrir torginu
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.8.2008 | 12:52
Barack með Barak
4.8.2008 | 11:28
Furðulostnir ferðamenn
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2008 | 21:06
Ferð til fortíðar
Ég tók þessar mynd í miðbænum þegar gömlu járnbrautarteinarnir frá 1913 komu í ljós í Pósthússtræti. Þeir hafa verið urðaðir að nýju og verða ekki sýnilegir framar. Á þessu svæði er mikið af gömlum hafnarmannvirkjum grafið undir malbikinu og nýrri húsum. Miðbærinn á sér merka sögu sem birtist stundum óvænt við framkvæmdir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.8.2008 kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.8.2008 | 16:50
Listin að byggja við Laugaveg
Égt hef verið að skoða hugmyndir um byggingu Listaháskólans við Laugaveg.
Ég er hlynntur skynsamlegri uppbyggingu en er á móti niðurrifi húsa með sögu og sál.
Sú hugmynd að leyfa einu gömlu húsi að standa en rífa ósköpin öll finnst mér vitlaus. Húsið sem fær að standa skv. sigurtillögunni, verður líkt og dapurleg áminning um það sem við höfum misst. Skólabyggingin er of stór fyrir sitt nánasta umhverfi og mun eyðileggja götumyndina enn frekar en orðið er. Hvers vegna er íslenskum arkitektum og byggingaverktökum ómögulegt að aðlaga sig að því sem fyrir er? Hvaða uppskrúfaði belgingur er þetta!
29.7.2008 | 17:25
Friðarhorfur hjá Olmert
Hvaða ríki hegðar sér líkt og Ísrael? Tekur land annarra og drepur fólkð sem ekki sættir sig við yfirganginn. Það eru enn milljónir klasasprengja í jörðu í Líbanon, það eru 10,000 Palestínumenn í fangelsum í Ísrael. ísraelski herinn er búinn að brjóta niður 18,000 hús. Hvað eru mörg hús í Reykjavík?
Ísraelsmenn skutu palestínskan dreng | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.7.2008 | 08:16
ESB – fyrst inn og svo út
Ég er maður hinna einföldu lausna. ESB málið er ekki flókið fyrir Íslendinga þótt svo virðist af allri umræðunni með og á móti aðild. Lausnin er auðvitað þessi: fyrst göngum við í ESB og njótum þess efnahagslega ábata sem það mun færa okkur. Síðan, þegar þeir sem benda á ókostina, s.s. framsal fullveldis, hafa sannað sitt mál, þá kýs þjóðin einfaldlega að hverfa til gamla tímans og gengur úr ESB. Við tökum aftur upp hærri vexti og snarhækkað vöruverð og endurreisum jafnvel krónuna til að fullkomna verkið. Fullveldinu bjargað, efnahagslegur gróði kominn í hús og við leysum landfestar og siglum aftur á okkar stað fjarri Evrópu.
Geir Harde er nýbúinn að ráð sér ráðgjafa sem efalaust kostar sitt. Til að efla þjóðarhag þá býð ég hér með Geir að hringja í mig endurgjaldslaust hvenær sem er milli 9 17.
21.7.2008 | 23:10
Svart ástand í Palestínu
Það var fróðleg frétt um málefni Ísraelsríkis í Sjónvarpinu í gær. Þar kom fram að hópur fólks frá S - Afríku heimsótti Palestínu og kynnti sér aðstæður á herteknu svæðunum. Hópurinn samanstóð af lögfræðingum, dómurum ofl. fólki sem allt þekkti vel til þeirrar kynþáttakúgunar sem ríkti í heimalandi þeirra áður fyrr. Meðal ferðalanganna voru nokkrir gyðingar og voru birt viðtöl við þá í frétt RÚV. Þeir sögðust hafa uppgötvað að ástandið í Palestínu væri svipað og það var áður í S - Afríku þegar kynþáttastefnan réði þar ríkjum. Í S-Afríku var svörtum mönnum skipað að búa innilokaðir í s.k. Bantústan-svæðum við mikla eymd og fátækt. Þessa frétt bar uppá 90 ára afmæli Nelson Mandela en hann hefur fordæmt kynþáttastefnu Ísraelstjórnar.
Einhver skrifaði ekki fyrir alls löngu að ef Palestínuarabar væru blökkumenn þá væri heimurinn búinn að stöðva framferði Ísraela. En tök Síonista í bandarískum stjórnmálum virðast gera þeim kleift að halda áfram hinn gengdarlausu kúgun í Palestínu. Og ef marka má yfirlýsingar Óbama, fyrsta blökkumannsins sem á möguleika á að ná kjöri sem forseti BNA, virðist lítil von til þess að hann breyti stefnunni gagnvart Ísrael.