Kastljós á Seðlabankaskýrslu

Í skýrslu Seðlabankans sem birt var 26. apríl 2008 stendur skrifað:
„fyrir ári var niðurstaða greiningar Seðlabanka Íslands sú að fjármálakerfið væri í meginatriðum traust. Sú niðurstaða er óbreytt. Ársreikningar íslenskra fjármálafyrirtækja fyrir árið 2007, sérstaklega þriggja stærstu bankanna, sýna enn sem fyrr að þeir eru þróttmiklir.“
Ennfremur:
„Á heildina litið er niðurstaða Seðlabankans enn sú að fjármálakerfið sé í meginatriðum traust. Íslenska bankakerfið uppfyllir kröfur sem gerðar eru til þess og stenst álagspróf sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafa gert.“

Hvernig rímar þetta við yfirlýsingar Davíðs til ríkisstjórnarinnar sem hann sagði frá í Kastljósinu?
Hvaða sirkus er þetta sem þjóðin hefur fengið yfir sig?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna vitnar þú í skýrslu sem til er í Seðlabankanum og í henni er vitnað í álagspróf bankastofnana sem framkvæmt var af Fjármálaeftirlitinu.

Þess ber fyrst og síðast að geta að álagspróf Fjármálaeftirlitsins sem framkvæmt var á bönkunum er sambærilegt öðrum álagsprófum sem fjármálaeftirlit í aðlidarlöngum ESB gera. Vísu er slíkt próf umdeilanlegt, en staðreynd málsins er hinsvegar sú að prófið tekur ekki tillit til lausafjárskorts, m.ö.o. tekur prófið ekki á þörfum bankanna fyrir laust fé. Heldur tekur prófið að meginhluta til áhlaups erlendra aðila á hina íslensku banka, slíkar aðgerðir hafa ekkert með laust fé að gera.

Ákvörðun íslenskra stjórnvalda að þynna út eignarhlut í Glitni með því að kaupa 75% hlut bankans fyrir 600 miljónir evra varð til þess að lánshæfismöt ríkissjóðs og bankanna lækkuðu. Það leiddi af sér að aðrir bankar sem fengu lakara lánshæfismat fyrir vikið brutu því lánasamninga og lánalínur lokuðust í kjölfarið.

Auk þess varð áhlaup á IceSave reikninga Landsbankans í Bretlandi og á aðeins örfáum dögum tæmdust hirzlur bankans af lausu fé. Svo ekki sé talað um Glitniskaupin sem höfðu áhrif á veðhæfni hlutabréfanna hjá fyrirtækjum landsins t.a.m. Stoðum.

Það segir sig sjálft að sú keðjuverkun sem varð á 10 daga tímabili í upphaf októbermánaðar á síðasta ári var röð atvika sem eru svo traumatísk að ómögulegt hefði verið að taka tillit til þess í hefðbundnu samevrópsku álagsprófi sem FME gerði og Seðlabankinn byggir niðurstöðu sína á og þú ert að vitna í hér.

Ég er ekki þar með að bera í bætifláka fyrir Davíð Oddsson eða nokkurn annan mann. Ég get vel verið sammála Trygga Þór Herbertssyni hagfræðingi um að röng aðferðarfræði við Glitniskaupin hafi hrundið snjóboltanum af stað sem ekki varð stöðvaður og að lokum endar hann á húsvegg íslensku þjóðarinnar og sprengist í klessu.

Í umræddu Kastljósviðtali vitnar Davíð Oddsson í fundargerðir og skýrslur færustu sérfræðinga Evrópu í fjármálastöðugleika, við skulum láta það liggja á milli hluta hvort hann brjóti bankaleynd með þeim aðgerðum, en ef Davíð Oddsson hefur komist upp með að stjórna landinu frá 1991-2005 og þá lengst af sem Forsætisráðherra er ekki ástæða til að efast um að tilvitnanir hans í umrædd gögn séu sannar og réttar.

Auk þess þarf ekki geimvísindamann til að sjá það að bankakerfi sem er tólföld þjóðarframleiðsla í landi sem hefur minnsta gjaldmiðil í heimi fæst ekki staðist til lengdar. Það myndi ganga kraftarverki næst ef allur þessi sirkus og sérstaklega hrun 85% bankakerfisins á einni viku sé Davíð Oddssyni einum að kenna.

Minnumst þess að Jón Baldvin hafnaði embætti Forsætisráðherra árið 1991 og gekk til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn til að koma Íslendingum inn í EES sem bannaði Seðlabanka og Fjármálaeftirliti að skipta sér af IceSave reikningum Landsbankans í London. Hugsanlega hefði betur verið heima setið en af stað farið.

... höfundur er viðskiptafræðingur.

Sigurður H. Álfhildarson (IP-tala skráð) 25.2.2009 kl. 00:07

2 Smámynd: Óttar Felix Hauksson

Þegar hinn 11. september í efnahagslífi Íslands átti sér stað í byrjun október 2008, þá vildi svo til að einn af forsvarsmönnum Moody's var staddur í sjónvarpssal beinnar útsendingar hjá fjármálasjónvarpsstöðinni CNBC Europe. Ég sat og horfði á hann í tölvunni hjá mér. Talið barst að íslensku krónunni og Seðlabanka Íslands. En í þessum hamförum náði íslenska krónan sennilega að falla mest allra gjaldmiðla án þess að viðkomandi seðlabanki gerði neitt til að stöðva fallið

Þetta er dálítið merkilegt. En hvað er svona merkilegt við þetta? Jú, talsmaður Moody's sagði það vera Seðlabanka Íslands til mikils hróss að hann freistaðist ekki til þess að grípa inn með stuðningsuppkaupum á krónu. Þessi maður frá Moody's vissi nefnilega vel að þetta er freisting sem hefur orðið mörgum gjaldeyrisforðanum að falli, því í hita augnabliksins er svo auðvelt að missa skynsemina og fara að ímynda sér að hægt sé að verja myntina gegn ofurkröftum. Endalaus röð af seðlabönkum heimsins hafa reynt þetta í erfiðum aðstæðum og er hausinn oftast blásinn af þeim og forðinn gufar upp


Ekki á þeirra vakt

En þetta gerðist bara ekki hjá Seðlabanka Íslands. Hausinn var ekki blásinn af Seðlabanka Íslands og gjaldeyrisforða þjóðarinnar var ekki eytt í halda uppi vonlausu gengi einungis hinum vonlausu til hjálpar

Þjóðin getur því þakkað hæfum mönnum Seðlabanka Íslands fyrir að hún á ennþá gjaldeyrisforða. Honum var ekki eytt til hjálpar hinum vonlausu. Hann var geymdur handa þjóðinni. Geymdur ef til harðinda kæmi og ef Ísland hefði þurft að halda út og þrauka eitt og yfirgefið í óvinveittri baráttu - og ef þurft hefði að semja illvíga samninga við umheiminn, algerlega án utanaðkomandi hjálpar. Það hefði því verið hægt. Styrkleiki í samningum er nauðsynlegur en hann hverfur þó oftast ef þjóðin sveltur. Þetta var tryggt vegna þess að það sátu hæfir hagfræðingar og vanir stjórnendur í Seðlabanka Íslands. Banka þjóðarinnar. En núna á samt að reka þá

Næsta atriði í krísustjórn undir áföllum - og ennþá hér samkvæmt Moody's - er að tryggja að það sé ekki gert áhlaup á gjaldeyrisforðann. Að hann endi ekki á Cayman eða í hólfi í Singapore í eigu fárra aðila. Þetta tryggði Seðlabanki Íslands einnig. Gjaldeyrisforðinn er þarna ennþá, fyrir þjóðina. Seðlabanki Íslands sýndi hér í verki að hann er stofnun sem brást ekki. En mikið var lagt á hann. Öllu var hrúgað á þessa stofnun. Óhæfum fjármálageira á ólöglegum vaxtahormónum, óhæfum rembum útrásar og einnig eyðslusamri ríkisstjórn. Svo biðja menn um kraftaverk á meðan allt var gert sem yfirhöfuð var hægt að gera til að þröngva Seðlabankanum til að grípa til örþrifaráða. Gjaldmiðillinn níddur niður, sífellt grafið er undan öllu með innilegri heimsku fjölmiðla, forvígismenn lýðskrumast í akkorði og Samfylkingin grefur undan starfshæfni ríkisstjórnarinnar þegar mest ríður á að hún sé sterk og þróttmikil

Hin nýja ríkisstjórn Íslands heldur eins og öll vinstri öfl alltaf halda að það sé hægt að laga allt ef bara settar eru fleiri reglur. Hún heldur að allir hætti að aka óvarlega vegna þess að þeir hafi bílpróf. En vandamálið er bara það að ríkisstjórn Íslands situr núna ölvuð undir stýri og er að keyra yfir á rauðu ljósi út um allt. Hún mun brjóta allt og bramla í ölæðinu. Hún er nefnilega ofurölvi og víman er hefndarþorsti, skítt með þjóðina og skítt með landið. Ölvunaræði þar sem bakarar bæjarins verða hengdir opinberlega sem smiðir. Brátt mun brauðið því þverra

En hver gerði þetta?

En hver gerði árásina á Ísland, á myntina, á Seðlabankann, á ríkissjóð og á öryggi þjóðarinnar? Það veit ríkisstjórnin ekki, hún hefur ekki tíma, því hún er úti að aka

Ekki einu sinni seðlabankastjóri Evrópusambandsins mun geta fengið vinnu hjá nýju ríkisstjórn Íslands því hann hefur ekki prófið. Þess utan þá hefur hann aldrei prófað neitt nema að búa í ríkisreknu hagkerfi svo prófið skiptir heldur ekki máli hér. En núna getur nýja ríkisstjórn Íslands valið úr fullt af hæfum mönnum úr hinu fyrrverandi af öllu fyrrverandi, þ.e. frá leifunum af fjármálageira Íslands og klappstýrum gulláranna

Þvílíkir kjánar og einfeldningar. Næst verður forsætisráðherrann krafinn um skilríki þegar hann/hún þarf að fara á . . . já þú veist.............Ofanskráð er tekið af bloggi Gunnars Rögnvaldssonar og er athyglisvert innlegg í þá einlitu umræðu sem átt hefur séð stað hér á landi í kjölfar atburða þeirra er leiddu til falls bankanna. Grunnhyggnir tækifærissinnar úr rýmsum áttum hafa reynt að skjóta pólitískum keilum, ráðast á Seðlabanka Íslands og gera hann að blóraböggli. Forsætisráðherra vinstri starfsstjórnarinnar hefur látið etja sér á foraðið og fjölmiðlar hafa básúnað upp órökstutt blaðrið semi stórasannleiik, að forsenda afturbatans í efnahagsmálum sé að finna í hreinsunum í yfirstjórn Seðlabanka Íslands! Spyrja mætti hvort í kjölfar fall Lehman brothers bankans í Ameríku, sem hafði keðjuverkandi áhrif á starfsemi vestrænna banka, hvort Hörður Torfason, Jóhanna Sigurðardóttir og Co. ætli ekki að skrifa Obama bréf og spyrja hvort hann vilji ekki reyna að víkja Ben Bernanke seðlabankastjóra úr starfi (hann er með 14 ára samning frá 2006). Hvergi í hinum vestræna heimi annars staðar en hér hafa ríkisstjórnir reynt að reka yfirmenn seðlabankanna í kjölfar bankakreppunar. Þær eru upplýstari en svo um orsakir vandans.

Óttar Felix Hauksson, 25.2.2009 kl. 00:22

3 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Í þeirri skýrslu sem ég vitna til segir að álagsprófið hafi verið á vegum FME og SÍ. Ef Davíð Oddsson, á sama tíma, segir allt annað við ráðamenn en það sem þjóðin fær að sjá á prenti þá er það vítavert.

Spurningin um aðgerðir Seðlabankans til góð eða ills undir stjórn Davíðs býður ekki uppá einföld já eða nei svör.

Pólitískt ber Davíð Oddsson ábyrgð á uppbyggingu spilaborgarinnar. Það eru til kvikmyndir af honum hrópandi húrra fyrir „útrásarvíkingunum“.

Helsti hugmyndasmiður Eimreiðarhópsins, margumræddur Hannes Hólmstein Gissurarson, sagði í viðtali á Stöð 2 í sept. 2007: „Hugsið ykkur, bankakerfið hefur á milli sjö og tífaldast á svona, þessum fjórum fimm árum. Og hugsið ykkur hvað það væri nú gaman ef við bara héldum áfram og gæfum í.“

HHG er ekki bara vinur DO, hann situr í bankaráði Seðlabankans. Það sem við höfum í höndunum eru yfirlýsingar DO um viðvaranir hans, skýrslur SÍ sem segja aðra sögu, viðbragðaleysi ríkisstjórnar undir forystu Geirs H Haarde og fjármálaráðherra að nafni Árni Matthiesen.

Davíð fór í KB-bankann og tók út 300,000 kr. þegar uppvíst varð um ofurlaunasamninga forystumanna þess banka. Sami DO fór í Seðlabankann með 37% kauphækkun í vasanum og ofureftirlaunasamning.

DO er fulltrúi þeirra hugmyndafræði sem leiddi okkur fram af brúninni. Hann er harðskeyttur pólitíkus en ekki embættismaður.

Hann hefði aldrei átta að fara í Seðlabankann. Hann á að yfirgefa skipið líkt og aðrir skipstjórar - þó svo að hann beri ekki einn ábyrgð á því hvernig fór. Hann er einfaldlega rangur maður á röngum stað.

Atburðarásin við hrunið var hröð og hver stoðin af annarri féll undan fjármálakerfi landsins - og heimsins.

Ekkert gat stoppað skriðuna. Viðbrögð DO og ríkisstjórnarinnar verða vegin og metin í fyllingu tímans.

En eftir stendur að hann og hans flokkur eiga megnið af skítnum í flórnum sem nú þarf að moka.

Og þá má moka út hinu pólitíska spillingarkerfi sem hér hefur dafnað í áratugi.

Hjálmtýr V Heiðdal, 25.2.2009 kl. 08:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband