4.10.2008 | 15:27
Krísan hjá Krossinum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
4.10.2008 | 14:42
Aðgát skal höfð í nærveru þjóðar
Þegar þjóðin lendir á kapitaliskum bömmer þá verður að útskýra málin svo hún átti sig á ástandinu og leiðist ekki út í örvæntingu. En opnuviðtal Morgunblaðsins við Hannes Hólmstein er ekki það sem þjóðin þurfti. Erum við ekki búin að fá nóg af þessu ævintýri hans um að græðgin sé góð?
Lýðheilsustöð og landlæknir hafa beðið fjölmiðla um að fara varlega. Þessi hrekkur Moggans gæti komið illa við viðkvæmar taugar hlutafjáreigenda sem keyptu nokkur bréf í góðri trú á hið kapitaliska náttúrulögmál (ef trúa má HHG). Hannes segir: Sumir gera mistök og þeir hætta rekstri. Aðrir gera ekki mistök og þeir halda áfram rekstri. Þetta er lögmál kapitalismans og þegar á bjátar kemur þetta lögmál býsna vel í ljós. Lögmálið lemur skyndilega í haus þeirra sem keyptu hlut fyrir 2- 3 milljónir í Glitni. Voru það mistökin sem Hannes talar um? Er þetta ekki grundvöllur fagurgalans hjá Hannesi ofl. sem hafa lagt áherslu á að almenningur taki þátt í dansinum með hlutabréfin? Í kapítalisma fara menn á hausinn, en láta ekki hausinn, eins og í miðstýrðu hagkerfi skrifar Hannes. Fólkinu sem nú hefur tapað milljónum líður örugglega betur þegar kostirnir eru svo skýrt upp dregnir af þeim sem vita best.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2008 | 00:01
Hvar er hún Lána Lína núna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.9.2008 | 14:44
Kapitalisminn er vandmeðfarinn
Oscar Wilde á að hafa sagt um tískuna að hún væri svo erfið og vandmeðfarin að það þyrfti að gjörbreyta henni fjórum sinnum á ári. Það verður að segjast að svipað er ástatt með kapitalismann. Þessi yfirgripsmikla björgun almannavaldsins á starfsvettvangi veðmangara er ekki sú fyrsta og áreiðanlega ekki sú síðasta.
Hvað segir Hannes Hólmsteinn um þennan bandaríska sósíalisma?
Bush: Ábyrg og nauðsynleg inngrip | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.9.2008 kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.9.2008 | 12:45
Arnþrúður er borubrött
Arnþrúður Karlsdóttir á útvarpi Sögu er borubrött þessa dagana. Enda ástæða til þar sem útvarp Saga hefur mælst með mjög góða hlustun í nýjustu könnun á áhorfi, hlustun og lestri fjölmiðla. Í Reykjavík mælist stöðin með um 38% hlustun ef ég man rétt og það verður að teljast mjög gott.
Sjálfur hlusta ég oft á Sigurð G. Tómasson og einstaka sinnum á aðra dagskrárliði. Í gær heyrði ég Arnþrúði og aðra konu (náði ekki nafninu) ræða um heima og geima. Eitt atriði í máli Arnþrúðar finnst mér fáránlegt; hún réðist að samtökunum Amnesty International og talaði í niðrandi tón um starfsemi AI. Hún sagði að samtök sem þessi væru alltaf á höttunum eftir athygli og gaf í skin að þau fiskuðu í gruggugu vatni. Þekking Arnþrúðar á AI virðist ekki rista djúpt og ætti hún að kynna sér starfsemi samtakanna og hlutskipti þeirra mörgu manna sem þau hafa stutt um allan heim. Annað sem einkennir þennan þátt Arnþrúðar og vinkonu hennar eru hálfkveðnar aðdróttanir um menn og málefni. Fremur óábyrgt og ósmekklegt.
9.9.2008 | 10:42
Fólk á flótta
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.9.2008 | 21:08
Minning um merkan mann
6.9.2008 | 11:19
Palin er galin
Repúblikanar í Bandaríkjunum hafa valið sér varaforseta sem er fylgismaður kenninga s.k. Creationista. Sarah Palin heitir hún og sést hér í hópi stuðningsmanna.
Hvaða hugmyndir eru það sem hún aðhyllist? Í stuttu máli tekur hún sköpunarsögu Biblíunnar fram yfir allar vísindaskýringar síðustu hundrað ára eða svo. Biblían er gömul bók, verk manna sem höfðu enga vísindaþekkingu sem byggði á rannsóknum. Þeir höfðu ekki hugmynd um tilveru risaeðlanna, enga innsýn í innsta eðli hlutanna. Þeir vissu ekki neitt um eldfjöll, orsakir jarðskjálfta ofl. ofl. sem í dag flokkast undir almenna þekkingu. Raunvísindi voru í rauninni ekki til í þeirri mynd sem við þekkjum þau.
Fylgjendur creationisma telja að heimurinn væri afrek einnar veru, þeir nefna sköpunina intelligent design og hafna þróunarkenningu vísindanna. Í sjálfu sér finnst mér allt í lagi að menn hafi mismunandi hugmyndir um allt milli himins og jarðar og tilurð jarðar þar með.
Það sem mér þykir hættulegt í þessu samhengi er sá möguleiki að fólk með svona gamlar hugmyndir komist til áhrifa. Hvað þá á heimsvísu. Nægir að benda á hina s.k. neo-con menn sem umkringja Bush núverandi forseta BNA. Mikið hefur heimurinn mátt blæða fyrir hugmyndir þeirra, og að ekki sé talað um fólkið í Írak og víðar sem hefur blætt bókstaflega.
Vonandi verður Sarah Palin aldrei vararforseti eða forseti BNA.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
5.9.2008 | 18:02
Geir hinn góði
26.8.2008 | 15:48
Handaband fyrir handbendi
Ég er enn að hugsa um tilurð hins nýja meirihluta í borginni. Ólafur F fyrrverandi borgarstjóri hefur marglýst því að hann hafi verð gabbaður til samstarfs með málefnasamningi sem var of góður til þess að geta staðist. Nú hefur komið í ljós að það reyndist rétt. Helstu hugðarefni Ólafs, friðun sögulegra húsa og götumyndar við Laugaveginn, náttúruvernd, stöðvun Bitruvirkjunar og vera flugvallarins í Vatnsmýri sett á blað og Sjálfstæðismennirnir skrifuðu uppá þetta allt saman. Og Ólafur undi glaður við sinn málefnasamning, enda innsiglaður með handabandi við Kjartan M og Villa gamla góða. Betra gerist það ekki í pólitíkinni. Ólafur sprengdi Tjarnarkvartettinn í trúnni á handabandið, Sjálfstæðisflokkurinn komst aftur inn og í fyllingu tímans fékk Ólafur ný skilaboð vertu úti. Handsöluðu málefnin hans Ólafs hurfu á fyrsta degi hins nýja samstarfs við Óskarinn. Handabandið var aldrei alvöru, þetta var s.k. gabbhreyfing. Mikið notuð í íþróttum og greinilega viðurkennd í stjórnmálum.
Í þessu ljósi er áhugavert að fylgjast með Hönnu Birnu, nýja borgarstjóranum. Hún hefur að sjálfsögðu verið í mörgum fjölmiðlaviðtölum eftir að það samstarfinu við Ólaf F. var rift og Óskarsverðlaunahátíðin hófst (Óskar uppskar margvísleg verðlaun fyrir sig, vini sína og flokkinn). Ég gríp hér niður í viðtal á Rás 2 21. ágúst s.l.Fréttamaður spyr: Talandi um Bitruvirkjun, nú ætlið þið að hefja undirbúning á henni að nýju. En þeim var hætt efrtir úrskurð Skipulagsstofnunar sem taldi of mikil óafturkræf umhverfisáhrif af virkjuninni. Er ykkur stætt á að fara út í þessar framkvæmdir með þann úrskurð á bakinu?
Hanna Birna: Við förum ekki út í framkvæmdir, við höldum áfram rannsóknum á svæðinu. Við höldum áfram þessum undirbúningi. Það er aðalatriðið ..
Fréttamaður: En til hvers að fara út í rannsóknir ef ekki á að framkvæma?
Hanna Birna: Nú af því að það er okkar skoðun í þessum meirihluta að það eigi að fara í þessar framkvæmdir.
Svör Hönnu Birnu eru einnig gabbhreyfingar; ekki framkvæmdir - förum í framkvæmdir. Aðalatriðið er í raun aukaatriðið.
Í næstu kosningum kemur í ljós hvort Sjálfstæðisflokkurinn kemst upp með þessi vinnubrögð. Framsókn hverfur sem betur fer af vettvangi og Frjálslyndir sömuleiðis. Það verða ekki mörg tækifæri til þess að dubba litla flokka upp í borgarstjórastól eða aðrar vegtyllur gegn því að starfa með Sjálfstæðismönnum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)