Gróska í gerð heimildamynda

Me & Bobby FischerNú eru tvær íslenskar heimildamyndir sýndar í kvikmyndahúsum borgarinnar. Draumalandið og myndin um Bobby Fischer og Sæma rokk í Háskólabíói og nýlokið er sýningum á mynd Friðriks Þórs um Sólskinsdrenginn Kela.

Uppgangur heimildakvikmynda á Íslandi er staðreynd og á m.a. rætur sínar að rekja til breytinga á kvikmyndasjóði sem komu til framkvæmda um síðustu aldamót. 

Þá var kvikmyndasjóði skipt í deildir og heimildamyndagerðarmenn þurftu ekki að keppa við aðrar greinar kvikmynda um fjármagn frá sjóðnum. 

Í vinnslu er fjöldi mjög spennandi heimildamynda sem spanna vítt svið. Í sumum myndanna er litið til baka og örlög fyrri kynslóða könnuð, aðrar segja frá fólki og fyrirbrigðum í nútímanum.

Ég starfa við framleiðslu heimildamynda og fylgist með því sem kollegarnir eru að bjástra við. En það er ekki bara dans á rósum hjá okkur. Einn helsti dragbítur á framgang heimildakvikmynda er afstaða ráðamanna íslenskra sjónvarpsstöðva. Tvær þeirra, Stöð 2 og Skjárinn, kaupa alls ekki íslenskar heimildakvikmyndir og Sjónvarpið borgar smánarlegar upphæðir fyrir sýningarréttinn. Einnig virðist sú stefna ríkjandi þar að nú skuli fækka sýningum á íslenskum heimildamyndum. Þessi stefna varð fyrst merkjanleg árið 2007 og virðist halda áfram. Stefna RÚV gengur þvert á þá þróun sem hófst um aldamótin og er nú að skila mörgum frábærum kvikmyndum. Það gæti farið svo að stefna forráðamanna RÚV og annarra sjónvarpsstöðva verði til þess að heimildamyndagróskan stöðvist. Það tekur mörg ár að ná upp dampi í starfsgreininni en það þarf ekki nema skammsýni og stefnuleysi í stuttan tíma til að drepa allt í dróma.

Heimildamyndir eru oft framleiddar við mjög erfið skilyrði og margar ná ekki landi í fjármögnun. Myndin um Breiðavíkurdrengina, stórmerkilegt átak til að opna falin kaun þjóðfélagsins, skilur aðstandendur eftir með töluverðar skuldir. Kvikmyndin um Bobby Fischer og Sæma rokk er gerð án styrkja frá Kvikmyndamiðstöð. Hún er fullgerð vegna ótrúlegrar þrjósku eins manns og aðstoð vina og kollega.

Nú eru í vinnslu nokkrar heimildamyndir um hrunið og búsáhaldabyltinguna.  Enginn miðill er fær um að flytja þjóðinni nýja og raunhæfa sýn á atburði stundarinnar og tengslin við fortíðina líkt og góð heimildakvikmynd gerir. Draumalandið er dæmi um slíka kvikmynd. Það eru ekki allir sammála því sem þar er skellt fram, en myndin fær alla sem hana sjá til þess að hugsa alvarlega um þá pólitík sem hér hefur grasserað undanfarna áratugi.

Núverandi menntamálaráðherra hefur sýnt þeim sjónarmiðum sem hér eru sett fram skilning. Ég vona að Katrín Jakobsdóttir fái tækifæri til að sinna starfinu áfram og  sýna hvað í henni býr eftir kosningarnar. Ég mun að vísu ekki kjósa hennar flokk vegna afstöðunnar til Evrópusambandsins - það er slíkt hagsmunamál í mínum augum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Þorleifsson

Þú segir að Stöð 2 kaupi alls ekki íslenskar heimildarkvikmyndir.  Myndin Kóngar var þó keypt til sýningar þar fyrir um 10 árum.  Og greiðsla fyrir sýningu myndar Ómars Ragnarssonar "Á meðan land byggist" á RUV á sunnudagskvöldi klukkan 22, 23. febrúar 2003 hefur líklega ekki vigtað mikið upp í kostnað.  En hún var þó sýnd þar að lokum.

Pétur Þorleifsson , 17.4.2009 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband