Klemensínur komnar á kreik

BoxarinnÞað hefur tíðkast hér í mörg herrans ár að tala illa um fólk sem vogar sér að mótmæla á götum úti. Ég þekki þetta sjálfur vel frá dögum Víetnamstríðsins. Fréttamenn voru með upplýsingar á hreinu um fjölda þátttakenda - upplýsingar frá lögreglunni. Ekki voru allar löggurnar vel af guði gerðar, einn hótaði mér og fleirum lífláti. Hann var voða kurteis og passaði að það voru engin vitni. Þegar laugardagsmótmælin byrjuðu nú í október var strax byrjað í segja rangt til um fjöldann. Það er gert til þess að draga úr áhrifamætti aðgerðanna.Mótmælin við Hótel borg kölluð nýja leikendur á vettvang - sjálfskipaða verði spillingarinnar - tilbúnir til að ganga í skrokk á nærstöddum. Þetta eru hættulegir menn. Bæði sjálfum sér og öðrum.

Bláu höndinni brugðið á loft!

BoxarinnÓlafur KlemenssonÓlafur Klemensson hagfræðingur í Seðlabanka er greinilega ofbeldismaður sem veður um og hótar fólki barsmíðum.

Á myndbandi á mbl.is kemur mjög skýrt fram að hann ógnar fólki, það fer ekki á milli mála. Svo kemur ný frétt á mbl.is og þar segir hann að sér hafi verið ógnað. Allir sem sjá myndbandið vita að hann er ekki að segja satt og rétt frá. Hann er að hagræða sannleikanum. Hann er hagræðingur.

Í frásögn mbl.is segir að: „við Hótel Borg sést Ólafur bregða hönd á loft.“ Hér er það blaðamaður sem hagræðir sannleikanum. Ólafur sést ekki bara bregða hönd á loft - hann gengur á milli karla og kvenna og hótar líkamsmeiðingum. Með Ólafi er annar maður, sagður bróðir hans og svæfingalæknir. Sá gengur einnig um ógnandi og öskrandi „kommúnistadrullusokkar“. Það minnir á orðanotkun yfirmanns Ólafs, hin fleigu orð um „afturhaldskommatitti“ sem komu úr barka seðlabankastjórans. Gaman væri að vera fluga á vegg í Seðlabankanum og heyra Ólaf, Davíð og Hannes Hólmstein bankaráðsmann, ræða um þjóðmál með þeim áherslum sem hér hafa komið fram. 


mbl.is Taldi sér ógnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gazagettóið og fleiri gettó

Gaza

Margir þeirra sem tjá sig um ástandið á Gaza nota hið gamla spakmæli „Sjaldan veldur einn þá tveir deila“. Afstaða íslensku ríkisstjórnarinnar og fleiri ríkisstjórna er í þessum dúr. 

En það er ekki hægt að beita þessu spakmæli  á deiluna sem hefur staðið óslitið í 60 ár.

Ekki frekar en þegar gyðingar voru afkróaðir af dauðasveitum nasista í Varsjárgettóinu. Þá hefði verið fíflalegt að standa hjá og muldra þessa setningu.

Í Gazagettóið er fólki smalað saman og lokað inni af Síonistahernum. Þar er nú þéttbýlasta svæði í heimi! Og svo er sprengjum kastað dögum saman. Fólkið á Gaza hefur ekki frelsi til eins eða neins nema að hýrast þarna, svelta og deyja.  Af 1,5 milljón íbúa Gazastrandarinnar eru 300,000 upprunnir á svæðinu - hinir eru flóttamenn eða afkomendur flóttamanna. Með því að lýsa Hamas sem hryðjuverkasamtök þá getur hryðjuverkaher Ísraels farið sínu fram í friði fyrir vestrænum ríkisstjórnum. 

Heimildir í varnarmálaráðuneyti Ísraels segja að undirbúningur árásanna hafi byrjað, að skipun Ehud Barak varnarmálaráðherra, fyrir tæplega 7 mánuðum. Og það var á sama tíma og sömu aðilar stóðu í vopnahlésviðræðum við Hamas. Þetta var gert til þess að afvegaleiða Hamas að sögn sömu heimilda. Það var hluti vopnahléssamkomulagsins að Ísraelar afléttu umsátrinu. Við það var ekki staðið. Umsátrið hefur staðið óslitið í 18 mánuði.

Ríkisstjórnir í Ísrael hafa aldrei fallist á neina samninga nema þegar það hefur hentað þeim til að undirbúa enn viðameira rán á landi Palestínumanna. Stjórn Ísrael styður og stýrir landaráni landtökumanna á landi Palestínumanna. Ríkisstjórn sem heimilar slíkt hefur auðvitað stigið út fyrir þann ramma sem siðmenntað fólk heldur sig innan. Sama ríkisstjórn byggir risamúr á landi Palestínumanna. Múrinn gerir daglegt líf að martröð fólks sem hefur ekkert til saka unnið annað en að vera Palestínumenn. Ríkisstjórnir sem ganga fram með þessum hætti fá stundum bágt fyrir hjá s.k. alþjóðasamfélagi. En Ísrael er fyrir utan lög og rétt.Líkt og glæpamaður sem leikur lausum hala í krafti furðulegrar friðhelgi.

ESB hefur verið tregt til að samþykkja aðild Tyrklands sökum skorts á mannréttindum. En ESB styður Ísrael á mörgum sviðum, og til tals hefur komð að hleypa því inn í sambandið með einhverjum hætti. Og eftir að Obama tekur við í BNA þá mun stjórn Ísrael fá enn viðameira skotleyfi á Palestínumenn. Allar yfirlýsingar Obama og Hillary verðandi utanríkisráðherra sýna það.   Það er því ekki bjart framundan hjá fólkinu í Gazagettóinu og á Vesturbakkanum.  


Á enn að Hardera

Mynd 483394

Þetta er það sem Ísland þarfnast - forystumenn sem taka af skarið!

„Forsætisráðherra telur koma til greina að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ganga eigi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið“.

Á að senda þjóðina að kjörkössunum til að kjósa um hvort hún eigi að... hvað?

Hvernig væri að spara nokkra milljónatugi og hefja viðræður hið fyrsta og kjósa svo þegar valkostirnir liggja fyrir. 

Kosningar um viðræður eru í besta falli vitleysa. Um hvað á fólk að velja þegar það er ekki búið að koma neinum upplýsingum skipulega til þjóðarinnar. Það er tiltölulega lítill hópur sem hefur haft fyrir því að kynna sér ESB. 

Og ef að þjóðin vill ekki umsóknarviðræður - þá hefur málið verið afgreitt án þess að málefnin verða komin á umræðustig. 

  


mbl.is Umsókn í þjóðaratkvæði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á biðstofunni

falkinnMér skilst að ég sé að bíða. Ég sit inni á biðstofu Sjálfstæðisflokksins og bíð eftir að flokkurinn haldi landsfund til að ákveða stefnu í s.k. Evrópumálum. Öll þjóðin virðist vera þarna inni.  Á biðstofunni liggja frammi ýmis blöð og plögg líkt og hjá tannlækninum. Sum gömul og önnur nýrri. Hér eru greinar eftir Hannes Hólmstein, bæklingar um íslenska efnahagsundrið, ræða Geirs H Haarde frá síðasta landsfundi þ. 26. apríl 2007. Ég flétti í gegnum hana í skyndi, gríp setningu og setningu..

„Við horfum til nýrra tíma með nýjum tækifærum...

Við höfum náð að styrkja efnahagslegu stöðu þjóðarinnar með þeim hætti að aðdáun hefur vakið víða um heim. Þau viðfangsefni sem við glímum nú við í efnahagsstjórninni hér á landi þættu flestum öðrum ríkjum öfundsverð...

Útrás íslenskra fyrirtækja hefur bæði skapað ungu fólki ný og spennandi atvinnutækifæri og verðmæta reynslu en einnig fært þjóðarbúinu nýjar tekjur úr ýmsum áttum. Lífskjörin í landinu hafa stórbatnað og mun meira en í nálægum löndum. Það er meira til skiptanna en áður fyrir alla....

Staða okkar í alþjóðasamfélaginu hefur styrkst og Íslendingar njóta virðingar á alþjóðavettvangi....

Krafturinn í íslensku samfélagi á sér engin takmörk. Ísland er orðið það sem við sjálfstæðismenn lofuðum - land tækifæranna....

En ef mesta framfaraskeið hagsögunnar endurspeglar mistök í hagstjórn, skulum við 
sjálfstæðismenn fúslega gangast við þeim. Nei, góðir fundarmenn. Stóru hagstjórnarmistökin yrðu þau, að Vinstrigrænir og Samfylking tækju hér við stjórn efnahagsmála...

Við höfum byggt traustan grunn á síðustu árum, lagt grunninn að frekari framförum íslensku þjóðarinnar. Framundan eru nýjar áskoranir, ný tækifæri – nýir tímar...“

Nenni ekki að lesa meira af þessu. Til að drepa meiri tíma þá gríp ég grein eftir Styrmi Gunnarsson sem ber heitið Á leið til Munchen. Þetta reynist ekki vera ferðasaga eins og ætla mætti af titlinum. Hér er Styrmir hinn innvígði og innmúraði fyrrum ritstjóri að tjá sig um afstöðuna til ESB. Hér skín hrokinn í geng, hrokinn sem hefur alltaf einkennt afstöðu Sjálfstæðismanna til pólitískra andstæðinga sinna og náði hámarki í afstöðu Davíðs „við borgum ekki“ Oddssonar. Styrmir skrifar: Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki lokið því verki að móta og marka nýja utanríkisstefnu fyrir land og þjóð í ljósi breytra aðstæðna eftir að kalda stríðinu lauk og bandaríska varnarliðið hvarf af landi brott. Það er ástæða til að gagnrýna forystumenn Sjálfstæðisflokksins fyrir að hafa ekki tekið það verkefni fastari tökum. 
Í því tómarúmi, sem hefur skapazt á undanförnum árum af þeim sökum í utanríkismálum okkar hafa ýmsir leikið lausum hala.  Forseti lýðveldisins hefur ferðast um heiminn, talað eins og þar væri fulltrúi stórþjóðar á ferð og flutt ræður, sem mörgum var þá ljóst að voru ekki annað en innihaldslaus orð en þjóðin öll gerir sér nú grein fyrir. Núverandi utanríkisráðherra hóf feril sinn í því embætti með barnalegum hugmyndum um, að Ísland gæti lagt eitthvað, sem máli skipti af mörkum til lausnar deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessi ofurhroki á alþjóðavettvangi birtist skýrast í framboði okkar til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Nú er þessi blaðra sprungin“

Skrifum sínum lýkur Styrmir með þessum orðum: 

„Ég tel ekki að það eigi að verða utanríkispólitísktmarkmið Sjálfstæðisflokksins, að gera Ísland að áhrifalausum útkjálka í útjaðri Evrópu.

Í þeim fróðlegu umræðum, sem nú fara fram á vettvangi Sjálfstæðisflokksins um málefni Íslands og Evrópusambandsins hefur það sjónarmið komið fram, að þar sé á ferðinni friðþæging (appeasement) gagnvart Samfylkingunni til þess að koma í veg fyrir stjórnarslit. Með þeirri orðanotkun er raunverulega spurt, hvort Sjálfstæðisflokkurinn sé á leið til Munchen en nú í haust voru liðin 70 ár frá því að Neville Chamberlain sneri sigri hrósandi heim til Bretlands frá Munchen með pappírsblað, sem þeir höfðu sett nafn sitt á, hann og Adolf Hitler og Chamberlain taldi að mundi tryggja frið í heiminumum okkar daga. (Heimkomu Chamberlains má sjá á YouTube).
Mér dettur ekki í hug að Sjálfstæðisflokkurinn sé á leið til Munchen en til þess að hann slysist ekki í þá vegferð þarf grasrótin í flokknum að taka af skarið.“

Þetta er merkilegt. Mögulegar aðildarviðræður, því það er ekki verið að ræða fleiri skref að sinni, er hér líkt við feigðarflanið í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar! Menn finna hér þyt sögunnar leika um sali (biðstofuna). Flokkurinn sem hefur haft forystu um að gera Ísland að tímabundnum þurfaling á ekki „að gera Ísland að áhrifalausum útkjálka í útjaðri Evrópu. „Útkjálki í útjaðri“ Það er þykkt smurt viðbitið í Valhöll.

Eru menn ekki að taka sig full hátíðlega hér á bæ? Ég nenni þessu ekki lengur og yfirgef biðstofuna - og sé þá að flestir eru farnir, biðstofan er  næstum tóm. 

Ég held að ég geri best í því að fara til Ingibjargar og biðja hana um að koma okkur í kosningar hið fyrsta. Annað gengur ekki. 


Glæpamenn

Stjórnvöld í Ísrael er slíkt samansafn glæpamanna að leitun er að öðru eins. Enda þarf ríki sem vinnur markvisst að útrýmingu nánustu granna sinna ekki öðruvísi stjórnmálamenn. En framferði þeirra er samt á ábyrgð Bandaríkjanna.Án stuðnings frá Washington gætu þeir ekki storkað heimsbyggðinni með þessum hætti.

120 látnir eftir loftárásir Ísraela


mbl.is Röð loftárása á Gaza
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær grein eftir Njörð P. Njarðvík

NPNÍ dag birtist grein eftir Njörð P. Njarðvík í Fréttablaðinu undir fyrirsögninni: Til hvers er Alþingi? Njörður setur fram eftirfarandi fullyrðingar og spurningu í upphafi greinarinnar:

„Ísland er ekki lýðveldi. Ísland er flokksveldi. Íslenska þjóðin býr ekki við þingræði. Hún býr við flokksræði - þegar best lætur. Dags daglega býr hún við ráðherravald og ofríki fárra forystumanna í stjórnmálaflokkum. Og það sem verra er: íslensk þjóð er ekki lengur sjálfstæð og frjáls. Eins og Göran Persson sagði á dögunum: skuldugur maður er ekki frjáls. Frelsi krefst fjárhagslegs sjálfstæðis. Íslenska þjóðin er svo rígbundin í skuldafjötra að hún getur sig varla hrært. Ábyrgð á því ber ríkisstjórnin - og endanlega Alþingi. Þess vegna er nú óhjákvæmilegt að varpa fram þessari spurningu: Til hvers er Alþingi? Til hvers kjósum við þing?“

Umfjöllunarefni Njarðar P. Njarðvík er eitt mikilvægasta málið sem þarf að leysa úr ef þjóðinn vill eignast „Nýtt Ísland“. Hér kristallast uppgjörðið við flokksræðið sem hér hefur ríkt í áratugi og náði hámarki í stjórnartíð Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Þessir tveir arftakar helmingaskiptareglunnar komu upp grimmu foringjaveldi innan flokka sinna. Og nú uppskera þeir eins og til var sáð: báðir flokkarnir hafa misst mikið af sínum styrk. Þjóðin leitar útgöngu, burt frá spillingarflokkunum. En hvert getur hún leitað? Er til er forystuafl sem kemur með skýrar línur: uppgjör við flokksræðið og endurreisn Alþingis.

Ég hvet alla til að lesa  grein Njarðar P. Njarðvík. 


Þróun tungumálsins

Kreppuorðabókin

Í umróti síðustu mánaða hefur margt skolast til hjá þjóð vorri.  Tungumálið er ekki ósnortið af útrásinni og viðskiptagleðinni sem hér ríkti.  Kunningi minn hefur nú gefið út nýja orðabók sem skýrir hið nýja mál.  Og í kaupbæti fylgir svo Útrásarvíkingaspilið!

Kíkið á:http://bankiska.ljod.is/


Rúðubrot

Brotnar rúðurStaksteinar Morgunblaðsins fjalla í dag um skæruliðamótmælendurna sem fara víða þessa dagana.

„Það er áhyggjuefni ef ólátabelgir og skemmdarvargar, sem þora ekki einu sinni að láta sjá framan í sig, ætla að ræna málstað þeirra, sem vilja mótmæla ríkjandi ástandi á Íslandi.Heimskuleg ólæti og skemmdarverk lítils hóps í húsnæði Fjármálaeftirlitsins í gær voru málstaðnum ekki til framdráttar... Eru mótmælendur ekki að berjast fyrir betra þjóðfélagi?Og ef fólk vill í alvöru losna við stjórnendur Fjármálaeftirlitsins - dettur því í hug að nokkur maður vilji segja af sér starfi eða embætti vegna ofbeldis, skemmdarverka og hótana? Er ekki nær að beita sannfærandi rökum?“ 

Þvílíkt bull! Hvernig geta hópar mótmælenda „rænt“ málstað annarra? Hér er hið sígilda tuð íhaldsafla sem miðar að því að koma óorði á þá sem þora að sýna hug sinn í opinberum aðgerðum s.s. útifundum og borgarafundum. Rúðubrot eins hóps hafa ekkert með útifund annars hóps að gera. Hóparnir geta verið sammála um einhver mál og önnur ekki. En að reyna að segja að aðgerðir hörðustu mótmælendanna setji mótmæli annarra í einhverja nýja stöðu er bara þvæla. Og svo er rúsínan hjá Staksteinum þessi setning: „dettur því í hug að nokkur maður vilji segja af sér starfi eða embætti vegna ofbeldis, skemmdarverka og hótana? Er ekki nær að beita sannfærandi rökum?“  

Sannfærandi rök eru allt um kring - ástandið í þjóðfélaginu sýnir að stjórnendur Fjármálaeftirlitsins eru ekki traustvekjandi. En það er greinilegt að þeir eru sannfærðir um eigið ágæti og hyggjast halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. 


Jólaglaðningur frá Ísrael

gaza by latuffÞessi frétt birtist á vef RÚV. 

„Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna á Gaza-ströndinni hefur hætt dreifingu matvæla til nauðstaddra að því er segir á vefsíðu samtakanna. Þar segir að vegna viðskiptaþvingana Ísraelsmanna séu matvæli á þrotum og hveitibirgðir uppurnar. Búist hafi verið við hveitibirgðum til Gaza 9. og 10 þessa mánaðar, en ekkert hafi orðið úr.Um helmingur íbúa Gaza, eða um 750.000, treysti á matvælaaðstoð frá flóttamannahjálpinni. Formlegt vopnahlé Ísraelsmanna og Hamas-samtakanna á Gaza rennur út á morgun.“

Og heimurinn horfir á - og fagnar 60 ára afmæli Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Ísraelsríkis! 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband